Það tilkynnist hér með opinberlega að úti er kalt og ofurmennið nennir ekki út að ýta föstum ökutækjum.
Það tilkynnist hér með opinberlega að fyrr í kveld eignuðumst vér eina ljótustu bifreið er vér höfum á ævi vorri séð.
Hér með tilkynnist opinberlega um forvitni Fergesja að vita, hvort um sé að ræða Fiat Multipla.
Hér með tilkynnist að við í höllinni erum að fara til svokallaðra útlandaStekkur hæð sína
Hér með tilkynnist opinberlega að téð bifreið er eigi Fiat-tegundar. Téð bifreið er að öllum líkindum upphaflega dökk japönsk eðaldrusla, sem hefir á langri ævi reynt að breyta sér í rauða japanska eðaldruslu. Með vafasömum árangri, vel að merkja.
Það má þá tilkynnast opinberlega að svokölluð útlönd eru ekki endilega til.
Það tilkynnist hér með opinberlega að ég er snúinn aftur úr sumarfríi.
Þeir sem hafa eitthvað við það að athuga verða að eiga það við sjálfa sig.
Hér með tilkynnist opinberlega að er vér pökkuðum niður trússi voru fyrir seinni leit uppgötvaðist að landabirgðir Kargsbúsins eru óðum að þverra. Og er það miður.
Það tilkynnist hér með opinberlega að ég er snúinn aftur úr sumarfríi.
Þeir sem hafa eitthvað við það að athuga verða að eiga það við sjálfa sig.
Það tilkynnist hér með opinberlega, að vér höfum engu við tilkynningu Línbergs að bæta.
Það tilkynnist hér með opinberlega, að þann fjórtánda júní, að ári liðnu og ríflega hálfu, hyggjumst vér opinbera persónu vora öllum þeim, er eigi vita nú þegar, og draga oss endanlega í hlé héðan.
Ofangreint mun standa, nema hávær mótmæli komi fram. Við slíkt munum vér kveðja formlega, en halda persónunni hulinni þeim, er eigi þekkja fyrir.
Ég tilkynni hér með opinberlega að mér hugnast eigi ætlaðar vínandavímuframkallaðar heitstrengingar Fergesja hér fyrir ofan, hvorug þeirra, og mun eigi taka mark á þeim.
Þér fáið nítján mánuði til að sættast á við þessi örlög.
Það tilkynnist hér með opinberlega að ég ætla að fara að sofa...
Það tilkynnist hér með að apakötturinn hann Úbbi hrekkti mig illa í dag.
það tilkynnist hér með opinberlega að ég hef ekkert sérstakt að tilkynna en lýsi þó sérstakri ánægju minni með tilkynningu Kargs hér að ofan.
Það tilynnist hjér með opinberlega að hér er ekkert sumar komið. Bara ský. Starir þegjandi út í loftið