Bágt á orðið búandinn.
barnið grætur mikinn.
Amma huggar angan sinn,
afii skaffar fnikinn.
----------------------------------
Hana bjálvinn tyggur tað
tæpur er á geði.
Hanabjálfinn tyggur tað
tæpur er á geði.
Það var lóðið. Það lá að!
Það var ljótt sem skeði.
Loks er fréttaveita vor
vöknuð upp af dróma.
Loks er fréttaveita vor
vöknuð upp af dróma.
Komin nú með kjark og þor
og krassandi til sóma
Haustið komið hret og rok
heima best þá setið.
Haustið komið hret og rok
heima best þá setið.
Máltíðar oft man ég lok
og melti lambaketið.
Alla kvelur hreyfing holl
hlaupa, skokka, synda
Alla kvelur hreyfing holl
hlaupa, skokka, synda.
Reka við með rakan koll,
rétt til málamynda.
Seint verður til viðreisnar
vitleysan á þingi
Seint verður til viðreisnar
vitleysan á þingi,
Bjarni Ben þar snöggur snar
snýst í ótal hringi.
-----------------------------------
Litir trjánna er töfrandi,
tími haustsins kominn.
Litir trjánna töfrandi,
tími haustsins kominn.
Nú latté café lepjandi
er lopapeysukomminn.
Pípunni í trantinn treð
og tendra eldinn
[i][b]
Pípunni í trantin treð
og tendra eldin.
þrotið er mitt góða geð
er grályndur og beldin.
----------------------------------
Rjólinu í túlann treður
og tekur svo í nefið.
Rjólinu í túlann treður
og tekur svo í nefið.
Lappi er sem ljótur reður
lekanda með slefið.
Lágt er flug á ljóðasmíð
Lappi gólfin sleikir
Lágt er flug á ljóðasmíð.
Lappi gólfin sleikir.
Eigi skaltu yrkja níð
illsku því það kveikir.
Yrkir lappi af miklum móð.
Margir elska og dá hann.
Yrkir Lappi af miklum móð.
Margir elska og dá hann
En Mjási stundar nöldurs njóð
og neikveðs hugann gráann.
-------------------------------------------
Fjallaskörðin fannnbarinn,
fara í leitir bændur:
Fjallaskörðin fannnbarinn,
fara í leitir bændur:
Upp á holtið, út í kinn;
alltaf vantar mannskapinn.
Sólin fellur fallega á húsið,
það fuðrar upp.
Sólin fellur fallega á húsið,
það fuðrar upp
Klaka settu soldið meir í búsið
segir Krupp... (stálframleiðandinn þ.e.a.s.)
Þett' er ljótur leirburður
lízt mér ekki á' ann.
Þett'er ljótur leirburður
líst mér ekki á'ann.
Áðan fæddist frumburður,
fæ bráðum að siá hann.
----------------------------
Sit hér gónandi og gapandi
get ekki meir,
Sit hér gónandi og gapandi
get ekki meir.
Úr kjafti, hrynjandi og hrapandi,
hrýtur leir.
Heyri ég húsbóndann kalla
"Haltu kjafti".
Heyri ég húsbóndann kalla
"Haltu kjafti".
Svona er fyrir að falla
fyllirafti.
Flesta stundum fanga um
frelsi dreymir.
Flesta stundum fanga um
frelsi dreymir.
Líka gamlan róna rum
ræfils, Heimir.
----------------------------------
Rollurnar í Dimma dal
drullu fengu.
Líka gamlan róna rum
garminn Heimir.
Þetta er ekki að gera sig lappi.