Áttir velja vegi sér,
vandamálin leysa.
þegar langar leiðir fer,
lengist víst hans reisa.
Reisugilin gleðja smið
Gott er þar að drekka
Löng er ei á bjórnum bið
Borðin vínið dekka
Dekkin slétt og slitinn vír
slatta maður pantar.
Kassinn fer í fjórða gír
en fimmta gírinn vantar
Vantar allt i vísu hér
Vísdómsorð ei falið
Hjá mér þreyttum alltaf er
innihaldið galið
Gala hérna allir æ
engu viti flagga
heima með sitt gismogræ
á gagnvarpinu lagga.
Laggafullur lútarseppi
ljóðagyðju dró í svað.
Upprifinn þó illa þekki
ergir varla mikið það.
Það ergir varla mikið menn
er myrkrið kemur,
þótt væflist hérna vofa enn
sem vísur semur.
Semur bækur, syngur ljóð.
Segist vera Messías.
Fetar troðna foldarslóð.
Freyðir öli hress í glas.
Glösum lyftum lepjum vín
leikum okkur saman
Sukkum okkur eins og svín
enda það mjög gaman.
Gaman finnst mér, fyllihundi,
með framkomu sem líkist svíni,
að storma inn á stúkufundi
og styðja algjört bann á víni.
Vínið bruggar bóndinn sér
berin ræktar sjáfur.
Betri finnst mér fullur hér
frekar en hér hálfur.
Hálfvitar ei hafa vit
hang' á net' og yrkja
Þess vegna ég sjálfur sit
sæll og ljóðin virkja
Virkjunarkostur sá vænlegur er
að veita í stokk niður brekkuna hér
bjórnum sem rennur úr blöðrunni í mér
og beisla þá orku sem úr henni fer.
Fer ég brátt að ferðast hér
firðina heimsæki
Sér í lagi leita mér
að landbúnaðartæki
Landbúnaðartæk' og tól
treysta má
Enginn notar undir sól
orf og ljá
Ljáspíkina legg á stein
er lítið bítur.
Slægjan síðan aðeins ein
örlög hlýtur.
Hlýtur skammir oft og ótt
óþekkt barnið
verður ei til saka sótt
satans skarnið
Skarnið hægt að yrkja um
æðislega vísu.
virðist þó að samt hér sum
söngli mest um skvísu.