Ég var að horfa á misheppnaðan íslenskan gamanþátt á Stöð 2. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Lesa í bók. Ætla bara að halda því áfram og skríða undir sæng. Góða nótt kæru póar.
Madaman var að argafjaðrast í aðalöndinni á skilgreindum páskaeggjaátstíma.
Ég var að fatta að ég er víst einn heima... og veit ekkert hvert allt fólkið fór... og er bara nokkuð ánægður með það.
Lesa misgáfulegar fréttir og skoða myndir. Geisp
Tékka á brauðinu sem ég er að baka
Rúlla. Dustar heyið af sér Sérdeilis gott heyskaparveður þessa dagana; menn hætta bara um kvöldmat því þeir vita að það verður líka nælonblíða á morgun. Sumar nætur er ekki einu sinni áfall.
Vakna með dóttur minni sem er alveg að verða 5 mánaða.
Reyna að sofa á versta rùmfleti sem um getur...
Ætla að skikka þjónana á heimilinu til að taka til í höllinni og leggjast í þann skærappelsínugula að horfa á alvöru ástarvellu þar sem enginn forseti er til að spilla ánægjunni með því að einoka fjarstýringuna.Gefur frá sér vellíðunarstunu
Ég var að athuga hvort hrossin mín væru ekki enn pelafær. Fær sér í nefið Þau eru það svo sannarlega.
Ég er að hugsa hvort að Kargur bjóði forsetafrú Baggalútíu og afkvæmum hennar einhverntíma á hestbak.
Ég var að berjast við tvo brjálaða Mustela putorius furo. Eftir langan og mikinn slag, þar sem húð var rofin og blóð flæddi (næstum) endaði ég á útsnúnu bragði sem tryggði mér sigur. Ég lokkaði þá í gildru með því að leggja fyrir þá hluta af hræi af Gallus gallus og svo loka þá inni.
Tvo?
Heimsækja mikinn stórbónda. Fær sér í nefið Hann var að sjálfsögðu úti á túni að slá á Zetor 6947.