Til flestra ber ég haturshug
og hefnast á þeim vil
Þá vinna a þeim ber þér bug
og bragur verður til
Vænkast hagur fífl eitt fór
á fætur aftur
Vænkast hagur fífl eitt fór
á fætur aftur
maðurinn fær meiri bjór
svo mali kjaftur.
Gleðilegan góðan dag
gaman er að lifa.
Gleðilegan góðan dag
gaman er að lifa.
spila eitthvert lífsins lag
og láta hjartað tifa
Fagran tel ei fyrripart
Fáið við að glíma
Fagran tel ei fyrripart
Fáið við að glíma.
Efnið það er ekki gott
erfitt við að ríma
Hann vildi fá sér villigölt
en veiddi þá sig sjálfan
Hann vildi fá sér villigölt
en veiddi þá sig sjálfan
Ef ég finndi bráðar brölt
Borða mundi hálfan
Samt ég latur heima húki
og horfi út um gluggann
Hann vildi fá sér villigölt
en veiddi þá sig sjálfan
Líklega er lukkan völt
og lán að ná í hálfan.
Hver á þessi bleiku blóm
er birtust hér við dyrnar?
Samt ég latur heima húki
og horfi út um gluggann
því ég er feitur fjandans púki
sem fell vel inn í skuggann.
Fór i bað, og fýlan hvarf
sem fylgt mér hafði lengi.
Fór i bað, og fýlan hvarf
sem fylgt mér hafði lengi
Árlega sig þrífa þarf
og þurrka vel og lengi
Alltaf mun ég elska snót
af öllu mínu hjarta
Alltaf mun ég elska snót
af öllu mínu hjarta
Ef að hún er ekki ljót
eigi mun þá kvarta.
Dagurinn góður og glampandi sól.
grillar þá frúin allt kjetið.
Dagurinn góður og glampandi sól.
grillar þá frúin allt kjetið.
Fyrir það besta hún fær frá mér hól
við fatið til kvölds verður setið.
Þegar finn ég þroskuð ber
þá ég fer að týna.
Þegar finn ég þroskuð ber
þá ég fer að týna.
Afhverju er engin hér?
Allt í þessu fína.
sjáum bráðum sunnudag
með sól og fínum hita.
sjáum bráðum sunnudag
með sól og fínum hita.
Roks a hlusta rekkar lag
Regn mun bleyta vita.
Seinna mun þó viðra vel
Vakna blóm i heiði
Seinna mun þó viðra vel
Vakna blóm i heiði
Allavega að ég tel
eitthvað vex á leiði.
Vökvar þessi vætutíð
vöknar tún og engi.
Vökvar þessi vætutíð
vöknar tún og engi.
Tímabær svo bleytan blíð
bætir grasvöxt lengi.
Yrkja bráðum meira má
Mærudagar bíða
Yrkja bráðum meira má
Mærudagar bíða
Dósum við úr drekkum þá
og dettum bara í'ða.
Hátíð er á Húsavík
heima best að vera.
Hátíð er á Húsavík
heima best að vera.
Mjög er hún af mæru rík
og margt þar hægt að gera.
Blessað regnið bleytir nú
báða enda mína
Blessað regnið bleytir nú
báða enda mína
Þó samt hef ég því á trú
að þurtsé nú í Kína.
Kræklingar og kræsingar
krakka marga heillar.
Kræklingar og kræsingar
krakka marga heillar.
Sparar nammisplæsingar
sporna glerungsfræsingar.
Undantekning engin finnst
á öllum þessum reglum.