Nei, eins kaldhæðið og það er, þar sem vjér höfðfum oss starfa af hópferðum vítt og breitt um klakann til nokkurra ára
Hafið þjér starfað sem útvarpari?
Aldrei.
Hafið þér íhugað forsetaframboð?
Nei
Hefur þú bakað rjómatertu?
Bæði de og re.
Hefur þú farið í allsherjar innanhreinsun?
Hrökklast aftur á bak og hrasar við Nei...?!?
Hefur þú Hrökklast aftur á bak og hrasað við við að lesa spurningu á þessum þræði?
Nei, enda flestu vanur.
Hefur þú slegið skáta?
Að líkindum eigi.
Hafið þjer orðið sjóveikir/veikar ?
Ældi eins og múkki í Herjólfi þó það var gott í sjóinn, blankalogn, blíðskapaveður og sól á himni.
Hefur þú farið til Hawaii? (Held bara að öllum langi að fara þangað)
Nei em jú mig langar, bara til að skoða stjörnuskoðunarstöðina þar
Hefur þú sèð geirfugl?
Nei, þess heiðurs höfum vér enn eigi orðið aðnjótandi.
Hafið þér notazt við viðsnúinn brodd án sýnilegrar ástæðu?
Nei, enda er sýnileg ástæða fyrir öllu sem ég geri.
Hefur þú sett eitthvað, sem ekki myndi flokkast sem matur, í mat einhvers annars til að gera viðkomandi ljótan grikk?
Nei
Hefur þú haft viðdvöl einhverstaðar?
Já.
Hefur þú huxað þér að segja skilið við Gestapó og Baggalútíu vegna fólksfækkunar á svæðinu?
Tja, ef ég verð ein eftir ... ... og ef það væri síða með sama húmor ...
Hefur þú staðist þá freistingu að svara þræði af því að þér þykir svo gaman að sjá gamalkunnugt nafn á Hvað er nýtt listanum?
Nei, ég svara öllu sem mig langar
Hefur þú viðhaft kynferðismök í sameign blokkar?