Nei, voða lítið
Hefur þú borðað 400+ gramma nautasteik á veitingarhúsi og beðið um ábót?
Nei.
Hefur þú drukkið tvo og hálfan lítra af bjór/blút á 20 mínútum og beðið um meira?
Áreiðanlega. Vér viljum þó sem minnst segja um það sjálfir.
Hafið þér misst alla trú á því, hverju þér hafið fyrir meginstarfa?
Nei, sýnist þér það?
Ætlar þú ekki að nota þitt?
Búin að því. Allir skallar glansa í kringum mig.
Hefur þú borið vitni?
Já.
Hefur þú verið kærð(ur) fyrir eitthvað?
Vér þáðum næturgistingu í fangaklefum nýlendu vorrar í westri tvisvar, en komumst með hjálp vafasamra tækniatriða hjá frekari dvöl á þeim bænum.
Hefir þú sloppið á tækniatriði?
Nei. Ég slapp ekki. Fékk þó aðeins sekt.
Hefur þú komið inn í fangelsi, ekki löglreglustöð, heldur alvöru fangelsi, sem vistmaður, starfsmaður eða í heimsókn?
Neibb... ekki svo ég muni allvega. svo nei. Því ég er viss um að maður myndi muna eftir því.
Hefur þú staðist eigin væntingar?
Jaaaaá... ef þú spyrð núna.
Hefur þú breytt væntingum þínum gagnvart sjálfum þér?
Já. Sveigjanleiki er nauðsynlegur á því sviði þegar ég á í hlut.
Hefur þú borið upp bónorð?
Nei, ég hef aldrei gert neinni manneskju þann ljóta leik. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Hefur þú tekið þennan mánudag í sát?
Já, hann er búinn að vera alveg ágætur.
Hefur þú unnið á bar?
Já. Það er ljóta helvítið ef húsreglur kveða á um að barþjónar séu edrú.
Hefur þú verið síðasti maður út af bar sem þú vinnur ekki á? Og þá meina ég sá síðasti.
Ef þú átt við að starfsfólki meðtöldu, þá nei. Annars já..
En jeg hef hins vegar drepist á bar og vaknað þar aftur morguninn eftir. Barir sem loka aldrei geta verið svakalegir.
Fórstu á útihátíðina Eldborg 2001?
Útihátíð, hvað? Lítum vér út fyrir að vera þannig þenkjandi?
Hafið þér farið í bakpokaferðalag um hálendi Íslands?