Styður enni við lófa.
Þetta var óvart.
Jæja, líklega verður einhver bið á næstu mynd, nema einhver grípi fram fyrir hendur vorar, enda er dagskráin heldur þéttskipuð hjá oss þessa helgina.
Ég bíð mig fram til að koma með næstu mynd fyrir þig, enda var mín síðasta mynd fljótafgreidd.
Það yrði vel þegið, enda var ágizkun vor vart fram sett nema í gríni.Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið.
Gott og vel xT
Grín segir þú. Ég sem vandaði mig virkileg vel við orðavalið. Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Tafl.
Fyrirgefðu Barbie, ég var ekki komin með rétta mynd og ekki heldur búin að nefna bókstafinn.
Þú sérð skruddu. Það er hverjum manni ljóst.
Safn?
Hvorki er það skrudda né safn.
Það er ekki skrítið að þú sjáir ekki árans skrudduna þegar þú situr og glápir á skilti öllum stundum!
Sniðugur Jarmi, en skiltið er ekki það sem ég sé.
Ekki heldur skápur.
Var það skólabók sem þú rakst augun í?
Er það einhver tiltekin bók sem vekur áhuga þinn Grýta?
Nei, ekki beint ein tiltekin bók Madam. En það sem ég sé er vissulega tengt tilteknum bókum.
Skáldsögur.