Togari.
Nei Grímsi minn þetta er varðskip. Ekki togari.
Sendir Grágrími 3 tunnur af söltum sjó svo hann geti æft sig í að míga
Mynd flutt.
Ath. gott er að skoða myndina í stærstu stækkun. Það eykur líkurnar á því að þið sjáið það sem um er spurt.
Eru það bláu tunnurnar sem eru þér svo hugleiknar að þú sérð varla annað?
Eru það bláu tunnurnar sem eru þér svo hugleiknar að þú sérð varla annað?
Þó svo að blái liturinn minni á þína undurfögru ásjónu, þá eru það ekki þær sem um er spurt. Glottir eins og fífl
Sáuð þér einhvers konar taug?
Sáuð þér einhvers konar taug?
Nei. Ekki eru neinar taugar sem vekja athygli mína.
Ég þykist sjá tappa í fallbyssuræflinum. Ertu að spyrja um hann?
Ég þykist sjá tappa í fallbyssuræflinum. Ertu að spyrja um hann?
Nei. Enda þykir mér það jaðra við landráð að setja tappa í fallbyssur þegar óvinir ríkisins vaða uppi með stólpakjaft og þref.
Spyr aftur
Eru þetta túristar sem vinkuðu þér þegar þú tókst myndina?
Vakti kannske túða athygli yðar?
Er þetta t fremst á skipinu?
Spyr aftur
Eru þetta túristar sem vinkuðu þér þegar þú tókst myndina?
Ég biðst innvirðulega forláts á því að hafa látið þessa þessa spurningu falla ósvaraða milli stafs og bryggju. En því miður er svarið nei eins og við öllum öðrum spurningum sem upp hafa verið bornar síðan ég svaraði síðast.
Er það tóg?
Nei, ég sé ekkert tóg.
Er þetta sem þú sérð staðsett á hægri helming myndarinnar?
Er þetta sem þú sérð staðsett á hægri helming myndarinnar?
Jú, hið umspurða ítem er á hægri hluta myndarinnar.