Á öllu.
Hafið þér áhuga?
Á mörgu.
Hefur þú löngun til barsmíða?
Já. Ég hef smíðað nokkra bari í gegnum tíðina og finnst það skemmtileg vinna.
Hefur þú hug á að láta smíða fyrir þig bar?
Já, Madaman væri alveg til í bar núna, það þyrftu að vera blindfylliálög á honum þannig að aldrei gengi vínið til þurðar.
Hefur þú lagst í dvala?
Nei en ég væri svo mikið til í það núna.
Hefur þú stundum á tilfinningunni að það sé alþjóðlegi allir á móti mér - dagurinn?
Já, en yfirleitt birtist einhver, sem veitir sól inn í daginn, þegar á líður.
Hafið þér velt því fyrir yður, hvernig það væri, að vera dauður?
Já, og komst að þeirri niðurstöðu að það er ábyggilega alveg drepfokking leiðinlegt og... niður ehmm drepandi.
Hefur þú gjarnan verið til í að fá smá pásu frá öllum fjölmiðlum?
Hana höfum vér öðru hvoru fengið, og munum líklega fá að nýju í sumar. Munum vér því vel taka.
Hafið þér íhugað að róa á önnur mið?
já auðvitað, hver ekki.
Hefur þú hlustað á áttræð hjón rífast?
Nei.
Hefur þú þagað í heilan sólarhring?
Nei. Svo lengi hef ég aldrei verið meðvitundarlaus.
Hefur þú séð Jarma hérna nýlega?
Nei það er orðið nokkuð síðan.
Hefur þú saknað Jarma?
Nei. Þetta er óttalegur bjáni.
Hefur þú kveikt í skóm sem þú samtímis ert með á fótunum?
Nei, en ég hef saknað Jarma.
Hefur þú ástæðu til að fá þér bjór á eftir?
Nei, enga góða alla vegana.
Hefur þú óskað þess að fá að upplifa náttúruhamfarir?
Já. Ég er alveg stöðugt að bíða eftir stórastormi.
Þá mun allt verða látið fjúka.
Hefur þú haft þig í frammi?