Folald? Hvernig kemur það út? Ég hélt alltaf að lamb væri eini valkosturinn. Mun hugsanlega kanski bara hafa hest að ári.
Hófum vér át hálfsjö í kveld, og lukum nú rétt í þessu, en etinn var hefðbundinn matur þessa dags, baunasúpa, lambakjöt, gulrœtur, kartöflur og rófur, allt vel salt. Á einhver afganga?
Hér voru saltkjöt og baunir... ég át 3 diska... ég verð í félagslegri einangrun næstu vikuna.
Þar sem það er öskudagur í dag, tel ég það góða hugmynd að fýra upp í grillinu og brenna nokkrar steikur. En ég nenni því áræðanlega ekki...
Grammidi. Eða var það grænmeti?
Salat með fetaosti og brauð með kæfu... sjitt, get ekki beðið!
Ræskir sig til að reyna að fela vandræðalega hávær hungurhljóð úr maga
Ég fann saltköt sem ég ætla að gleypa í mig áður en Færeyongurinn hengir það upp í kyndikompunni og reynir að breyta því í skerpikjöt. Sigar ketti á Færeyinginn
Ekkert, að venju.
*Hálsbólga og hor... með hóstakastssósu.
Eggjahvítuommeletta með grænmeti og salsasósu.
Eftir máltíðarlýsingu Grágríms er ég þó ekki viss um að ég hafi lyst á matnum. Hryllir sig
Það verða nokkur pylsukvekende.
Þetta er danskt þetta helvíti!
Krabbameinsdauðar hormónahænur úr Bónusi. Núna er kreppan farin að bíta okkur smælingjana. Smælar framan í heiminn
BBQ grísarif
Samloku, smurða með rjómapiparosti, kryddpylsu, hamborgarahrygg og osti á milli... algert æði.
Pönnukökur! Ljómar upp