Gott kvöld. Skúffa heiti ég og geymi ýmsar gerðir af kökum, aðallega þó skúffukökum. En hér leynist ýmislegt fleira, svo sem sælgæti af ýmsum toga og einstaka fróðleiksmoli inn á milli, jafnvel smávegis af kímnigáfu.
Ég er ný hér á Baggalúti, hef heyrt vel af látið og langaði til að prófa sjálf.
Ljómar upp
Fær sér sneið af kökunni
Velkomin og takk fyrir mig!
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer bjóðum yður hjer með formlega velkomna Fær sjer fróðleiksmola.
Ég þakka fyrir móttökurnar og lofa að eiga alltaf kökur og annað góðgæti í skúffunni.
Velkomin Kökuskúffa. Ljómar upp
Fær sér kökubita og kímni Ekki veitir af.
Mér lýst ákaflega vel á þig Kökuskúffa góð. Ég hef nú ekki verið kallaður Golli tertukjaftur fyrir ekki neitt.
Velkomin. Kemur með tertuspaða í partýið
Ef kakan inniheldur fróðleik skal ég smakka. Mig bráðvantar meiri dómgreind!!
Má eiga von á gulrótartertu í skúffunni svona endrum og eins?