Hver orti:
Rósa ljósa
reita skreyta
blóma ljóma
blíðir lýðir.
Björtum hjörtum
beinir reynir,
vengi lengi
víðir prýðir.
Jónas Hallgrímsson?
Hér er þörf vísbendingar. Nema þetta sé Hallgrímur Helgason?
Hákon Aðalsteinsson?
Jóhannes úr Kötlum?
Regína á kollgátuna!
Jóhannes úr Kötlum var það!
Þetta er úr Háttalykli, úr bókinni Bí, bí og blaka. Hátturinn heitir Nýi háttur.
Auðvelt!
Hver orti og um hvað?
Treysti ég því, að tímans straumur
tryggðir gamlar endurskíri.
Hörður, þú ert hugans draumur,
hjartans ljóð og ævintýri.
Meðan lífsins logar dofna,
lofa ég þig í kvæði og sögum.
Enginn meinar mér að sofna
við minningar frá liðnum dögum.
Hrifsar réttinn
Hver orti:
Grundar dóma, hvergi hann
hallar réttu máli.
Stundar sóma, aldrei ann
illu pretta táli.
?
Trick question:
Ó hve létt er þitt skóhljóð
ó hve leingi ég beið þín,
það er vorhret á glugga,
napur vindur sem hvín,
en ég veit eina stjörnu,
eina stjörnu sem skín,
og nú loks ertu komin,
þú ert komin til mín.
Þetta er eignað Halldóri Guðjónssyni, ef höfum vér rétt.
Stundar sóma, hvergi hann
hallar réttu máli.
Grundar dóma, aldrei ann
illu pretta táli.
Táli pretta illu ann,
aldrei dóma grundar.
Máli réttu hallar hann,
hvergi sóma stundar.
Er þetta rétt með farið hjá mér?