— GESTAPÓ —
Svör gesta við fyrirspurnum ?
» Gestapó   » Fyrirspurnir
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 22/2/11 20:32

Er gestum heimilt að svara fyrirspurnum hjer ? Megum vjer t.d. svara síðustu fyrirspurn (hún er frá Fergesja) í þessu innleggi með því að segja hjer að oss virðist sem nöfn rafmælisbarna á forsíðu Gestapósins sjeu birt í öfugri stafrófsröð ?

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Enter 5/9/11 20:25

Nei. Og þetta er ekki öfug stafrófsröð. Þetta er röðin sem við heimsækjum viðkomandi rafmælisbörnun í og færum þeim misdýrar gjafir.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð
Númi 5/9/11 21:11

Hérna ertu þá Enter! Svarandi kagúldnum fyrirspurnum sem eru komnar langt yfir síðasta neysludag. Áttu ekki að vera að vinna? Þessi stefnumótun í markaðssetningu samhverfa erlendis skrifar sig ekki sjálf!

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Enter 5/9/11 21:33

Halt þú kjafti Númi. Það er ekkert annað að gera hér á kamrinum eftir að þú sturtaðir Ennýal niður til að kanna „sambandið“ í klóakinu.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð
Númi 5/9/11 21:45

Þetta var hávísindaleg rannsókn á gerkosmískri „leiðni“ í hólkrými. Ég geri fastlega ráð fyrir að niðurstöðurnar verði birtar í hinu virta og ritrýnda vísindatímariti Popular Cosmotic Journal of Cosmotics. Farðu svo að vinna!

» Gestapó   » Fyrirspurnir   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: