Það vottast hjer með að ég telji að mjer hafi tekist að þýða skilaboð utan úr geimnum sem ákveðinn aðili hafði tilkynnt vor að hafa komist yfir í gegnum örbylgjuofninn sinn.
Skilaboðin eru á eftirfarandi leið; ´OVERLOOK HÓTELIÐ LEITAR AÐ NÝJUM UMSJÁANDA. ÞÚ VARÐST FYRIR VALINU ÞAR SEM AÐ ÞÚ ÁTT ÖRBYLGJUOFN , OG ÞAR SEM AÐ ÞAÐ ER AUÐVELDARA FYRIR HÓTELIÐ AÐ NOTA ÖRBYLGJUOFNA TIL AÐ ELDA MAT OFAN Í GESTINA , HELDUR EN HEFÐBUNDNA OFNA´
VIRÐINGARFYLLST - HÓTELSTJÓRNIN.
Vinsamlega ath; þetta er ekki tilraun til þess að fremja höfundarréttarbrot.
En spennandi. Mér hefur alltaf langað að starfa úti í geim/geym...... bíð eftir skilaboðum í minn örbylgjuofn. PS. ég er mjög góð með geisla fabrikkuna líkaStekkur hæð sína
Þar sem ég er skrifblind og lesblind líka, biðst ég forláts á þeim villum sem koma framm í skrifum mínum. Er voða dugleg að lesa yfir það sem ég skrifa en þar sem ég er lesblind.........Ljómar upp
Aldrei hef ég fengið svona skilaboð úr geimnum. En mér tókst hinsvegar að senda köttinn minn útí geim eitt sinn þegar ég ætlaði að þurrka hann. Var að spá í að reyna að fara á eftir honum en ég komst bara ekki inní örbylgjuofninn. Ég er samt alltaf að bíða eftir skilaboðum frá kisa en það bólar ekkert á þeim.
Iss, það er langt síðan ég hætti að hlusta á örbylgjuofninn minn. Miklu meira vit í hrærivélinni.
ertu nokkuð i hlíðunum eg var nefnilega á þessum tima að reyna að tengja tölvuna við örbylgjuofninn það gæti hafa truflað eitthvað rafmagnsveitu i hverfinu þar sem eg er ekki rafvirki en eg komst þó að þvi að það er ekki að gera sig að senda mynd af beykoni og eggi i ofninn það virkar ekki