Flæmingur er fagurt orð
þó fara margir undan því.
Það er líkt og líknarmorð
sem langar ekki nokkurn í.
Það er sumar, það er sól,
Sungið er á Austurvelli.
Það er sumar, það er sól,
Sungið er á Austurvelli.
Allir rónar enn á ról
rigsa þar í einum hvelli.
Höfuðstafinn helst ég set
mót hákveðanna stuðlum.
Höfuðstafinn helst ég set
mót hákveðanna stuðlum.
Eftir það í orðanet
einni vísu kuðlum.
Árla gala skal í skúr
skemmtilegar stemmur.
Árla gala skal í skúr
skemmtilegar stemmur.
Herramenn og fínar frúr
fá vart andans remmur.
Sólarlagið sindrar rautt,
svefninn herjar nú á brár.
Sólarlagið sindrar rauttt
svefninn herjar nú á brár
Dorma ég og dreymi blautt
Daginn eftir verð ég sár.
Í eðli mínu er ég róni
þó engin víma henti mér
Í eðli mínu er ég róni
þó engin víma henti mér
alla daga upp á Fróni,
edrúmennskan hæfir þér.
Oní mig ég alllaf læt,
alkóhól og pillur.
Oní mig ég alltaf læt,
alkóhól og pillur.
Snyrti mig og er of sæt,
sem kjánaprik með dillur.
Ef lánlaus maður lífið lofar,
leikur sér við fingur.
Ef lánlaus maðurlífið lofar
leikur sér við fingur.
Átímabili reyndar rofar,
þar reyndist karlinn slingur.
---------------------------------------
Mikil skelving Hallur hrítur
heirist niðrá torg.
Mikil skelving Hallur hrítur
heirist niðrá torg.
Stafsetningar lögum lýtur
Lappi ei sem veldur sorg
Taumlaust æð'í rúm'og tíma
treggáfaðir andans menn
Taumlaust æð´í rúm og tíma
treggáfaðir andans menn.
Þessa vil ég rétta ríma
rauður loginn brennur enn.
--------------------------------
Upp við húsin gestir híma
hríðskjálvandi á beinunum.
Upp við húsin gestir híma
hríðskjálvandi á beinunum.
Til læknis Siggi er að síma
sinna þarf hann meinunum.
Stökkvum svo örlítið til baka:
Oní mig ég alllaf læt,
alkóhól og pillur.
Er í vímu, ey ég græt
áttahundruð millur.
Vanda má hér vinnubrögð
og verja stuðlamálið.
Vanda má hér vinnubrögð
og verja stuðlamálið.
Mér finnst hérna lika lögð
likkja á vísna stálið.
--------------------------------------
Viskan gerir marga menn
montna það er lóðið.
Viskan gerir marga menn
montna það er lóðið.
Og af hroka upp ég brenn
ef ey þið mig sjóðið.
Dragspilið er djöfuls verk,
dárar fremja hljóðin.
Dragspilið er djöfuls verk,
dárar fremja hljóðin.
Áhrif þess á alla' er sterk.
Og nú dansar þjóðin.
Þig dreymdi frægð og frama
og fórst að yrkja' á Baggalút
Þig dreymdi frægð og frama
og fórst að yrkja' á Baggalút
en öllum er þar sama
um endurunninn kvæðagrút.
Brátt við fáum Örvíng Ojl
oní bensíntanka.
Brátt við fáum orving oil
oní alla tanka.
Það er bölvað fokking foil,
fjósakonur banka:
-----------------------------------------
Flúin er hann Lalli land
leiður á öllu hérna.
Flúin er hann Lalli land
leiður á öllu hérna.
Er hann siglir enn í strand
hér aftur verður þerna.
Dóminikk er dónakarl
sem dömu hverja eltir.
Dómenikk er dónakarl
sem dömu hverja eltir.
Hann góblar kex og snuffar snarl
og Snati kátur geltir
----------------------------------------------
Innan tökur og tannpína
takverkur og liðagigt.