Ef þú borgar inná skuld
aurin sá er glataður.
Er það vinur dulin duld?
Drengur ég var plataður.
---------------------------------------------
Kvöld golan kalda
kemur frá sjónum,
Kvöld golan kalda
kemur frá sjónum
Á haf vil ég halda
hafnar með rónum.
Humarveiði á Hornarfirði
hefur farið vel af stað.
Humarveiði á Hornarfirði
hefur farið vel af stað.
Sjá, ég núna samanspyrði
síldar tvær með nýjum vað.
Brátt ég mig í brók svo girði
beint svo arka í næsta svað.
Brátt ég mig í brók svo girði
beint svo arka í næsta svað.
Yrði fjör ef einhverð þyrði
um að skrifa í fréttablað.
Einn og sannur er og góður,
alþýðuna styðja vill:
Einn og sannur er og góður,
alþýðuna styðja vill:
Arnbjörnsson er ansi fróður
-ingu verkalýðs um spill-
Lífið er svo auðvelt nú
að um sín kjör neinn berst.
Lífið er svo auðvelt nú
að um sín kjör neinn berst.
Staðreyndin er semsagt sú
að seint í odda skerst.
Hver syngur Nallann núna?
Er nokkur sem enn á trúna?
Hver syngur Nallann núna?
Er nokkur sem enn á trúna?
Alþýðan uppábúna
ég á sem mjólkurkúna.
Allt er núna orðið hvítt,
ær er kúasmalinn.
Allt er núna orðið hvítt
ær er kúasmalinn..
Alt er drabbað skratti skítt
skottið,tagl og halinn.
_--------------------------
Blessuð lömbin leika sér
langa vorsins daga.
Blessuð lömbin leika sér
langa vorsis daga.
Í haust ég þau á hálsinn sker
og hnútur þeirra naga.
Metangas í Melasveit
að mestu er gert úr svínaskít.
Metangas í Melasveit
að mestu er gert úr svínaskít.
Iðraloft úr einni geit
til einskis teljast hérna nýt.
Eintölunnar orð ég tók
og upp það braut að hluta.
Eintölunnar orð ég tók
og upp það braut að hluta.
Hattur trefill buxur brók,
og beittan vasa kuta.
_--------------------------
Brandur hefur langan lók
lafandi sá ræfill.
Brandur hefur langan lók
lafandi sá ræfill
Með viagra hann vininn jók
þá virkaði hann sem svæfill
Ósama er fallinn frá.
Fólkið syrgir víða.
Ósama er fallinn frá.
fólkið syrgir víða.
Það er í lagi jamm og já,
var jaxlinn með hárið síða.
----------------------------------
Bagsi er líka fallinn frá
fögnuð það engan vekur.
Bagsi er líka fallinn frá
fögnuð það engan vekur.
Rúgbrauð smyr og ofan á
einhver hann þó tekur.
Vorið glennir gumpinn sinn
gantast nú um völlinn
Vorið glennir gumpinn sinn
gantast nú um völlinn.
En þá sjaldan að ég sýni minn
sópast börnin öll inn.
Ó, hve ég vildi veiða
vondan hvítabjörn.
Ó, hve ég vildi veiða
vondan hvítabjörn.
Röskur ríð til heiða
og reyni að hitta örn.
Birtan úti birtir sinni,
bráðum kemur sumar.
Birtan úti birtir sinni,
bráðum kemur sumar.
Heimskunnu á hátíðinni
ég Hafnar borða humar.
Súkkulaðið sætt ég brýt
og set á mínar baunir.
Súkkulaðið sætt ég brýt
og set á mínar baunir.
Óðar síðan öllu skít,
það eru miklar raunir.
Flæmingur er fagurt orð
þó fara margir undan því.