Já en ekki innbyrgt neitt súkkulaði í dag svo ég hef það bara gott.
Hefur þú Eldað nýjaa uppskrift í dag?
Nei. Ja, ekki beint nei því ég aðstoðaði við eldun á nýrri uppskrift að lambalæri í dag. Það var sérlega ljúffengt.
Hefur þú nagað á þér táneglurnar?
Já. Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið Ekki að staðaldri samt.
Hefur þú verið meiri bjáninn?
Nei bara mesti bjáninn.
Hefur þú kjaftað leyndarmáli?
Já þegar yngri dóttir okkar var á leiðinni sagði é vini okkar strax...
Hefur þú haft langvarandi tannpínu sökum fjárskorts?
Nei ég held ég hafi bara aldrei fengið tannpínu.
Hefur þú borðað á klósettinu til að fá frið fyrir öðru heimilisfólki? (er að horfa á þátt um þríburaforeldra)
Nei, en samt fengið mér kaffibolla og sígó.
Hefur þú hugleitt að opna útrýmingarbúðir?
Já, fyrir útrásarvíkinga og stjórnmálamenn.
Hefur þú tekið þátt í ólöglegu athæfi sem minnst var á í fréttum?
Já. Til dæmis almenna ölvun á almannafæri um Verzlunnarmannahelgi í Atlavík.
Hefur þú séð ofan í svartnættis koldýpis heljar myrkur?
Jú...er það ekki bara svona dimmt plús smá meira svart?
Hafið þér alið könguló?
Nei.
Hefur þú tekið það að þér að vera bílstjóri fyrir hóp fólks meðan það drekkur sig fullt?
Já, og í hófi getur það verið góða skemmtun.
Hefur þú hugsað þér að halda upp á afmæli Jarðar í dag?
Nei, enda var það í gær og ég ætla að bíða í 12 ár því þá verður jörðin 7000 ára og þá verður sko partý!
Hefur þú bakað brauð?
Já.
Hefur þú horft á hina stórkostlegu Game of Thrones þætti?
Já hef bakað brauð.
Hefur þú prumpað hátt og snjallt í leikhúsi?
Nei, ég er að spara mér þá í nokkrar vikur svo ég geti tekið almennilega helgi með mörgum þáttum í röð.
Hefur þú tæklað einhvern í skák?
Ekkert alvarlega, nei.
Hefur þú verið sannfærð/ur um að læknirinn þinn hafi rangt fyrir sér?