Er bréfberinn morðingi?
Öldungis eigi. Hann er ljúfur maður, en forvitinn.
Lifir bréfberinn myndina af?
Já.
Lendir bréfberinn í lífsháska í myndini?
Nei.
Var bréfberinn svo forvitinn í fyrra starfi, að hann komst að einhverju sem varð þess valdandi að hann þurfti að flytjast búferlum, skipta um nafn, og taka upp nýja iðn (e.t.v með stuðningi stjórnvalda) ?
Nafni og bústað hélt maðurinn, en rétt er það, að forvitni hans í starfi varð til þess, að hann fékk starfaskipti með stuðningi stjórnvalda.
Heyrir grun læðast að sér, að máske hafi hann ekki séð téða mynd, en þrjóskast við.
Var fyrra starf bréfberans innan fjármálageirans?
Nei.
Var hann tengdur einhverslags glæpastarfsemi?
Hann vann hjá ríkinu.