Linum Uppi kúki kastar
kanski slark.
Henntu vinur frekar fastar
fór í mark!
Mark tek varla á munknum þér,
mundu þetta
aldrei á lífið fullur fer
því fokkings mundi detta
Detta mér af höfði dauðar lýs.
Við dapurlegri framtíð hugur hrýs.
Því þegar blessuð þjóðin okkar kýs
þá er líkt og stjórni henni grís.
Grís á vappi vætu í
vingsar rófan stutta.
Vorsins golan heita hlý
hreinsar grísinn Putta:
Misheppnuð hringhenda, með smá tilfærslu á innríminu:
Puttann sjóðum sýna má
sem & óðum þjóðum.
Þeim vér bjóðum byrginn þá
& blóði hörginn rjóðum.
Rjóðum ungum meyjum má
mæta fyrir rétti.
Er heimasætan blíð á brá
brókum niður fletti.
(Mér af höfði detta dauðar lýs. annars er of langt milli stuðla. Eða Dett'af höfði dauðar mínar lýs. til að halda upphafsorði.)
Rjóðum blóði hverja hurð,
háska páska forðum.
Fólin góla á frum- hvern -burð
og flíka slíkum morðum.
Morðum forðar frækinn þegn
flestum löstum rúinn.
Að fella elli' er ei um megn,
orku sterkri knúinn.
Knúinn afli örvitans
sem eirir engu góðu.
Ef bara væri bévítans
betra að yrkja í móðu.
Knúinn afli örvitans
sem eirir fæstu* góðu.
Ef bara væri bévítans
betra að yrkja í móðu.
* Losar þig við aukaljóðstafinn.
Móðu ég á glerjum greini,
gleraugun samt áfram ber.
Það að móðan ljótu leyni
leyfir mér að brosa hér.
Hér þú einskis óska mátt,
aldrei kröfu gera.
lítill skalt og láta fátt,
en lífsins pínu bera.
Með vinsemd Skoðið vísu,S Natans Jónatans,frá 22-4-og vísu Lappa frá sama tíma ?
Með vinsemd Skoðið vísu,S Natans Jónatans,frá 22-4-og vísu Lappa frá sama tíma ?
Það vantar stuðul í fyrstu línu hjá þér, lappi. (Annars sá ég hana ekki þegar ég setti mína inn, sorrý.)
Rjóðum ungum meyjum má
mæta fyrir rétti.
Er heimasætan blíð á brá
brókum niður fletti.
Fletti ég í fínu blaði,
fæ mér ost sem vel má skera.
Samt ég hugsa um súkkulaði
sem að ég vil til þín bera.
Bera skal út boðin sæl
um betri tíð í haga.
Af voli komið nóg er væl
ef vilji er til að laga.
Bera skal út boðin sæl
um betri tíð í haga.
Nóg er komið vol og væl*
ef vilji er til að laga.
*þetta, t.d., losar þig við að hafa of langt á milli stuðla.
Lagað kaffi líkar ekki mér,
þó litlu skárra sé það, drukkið bilað.
Í aðra drykki alloft því ég fer,
en einnig þeim í klósettið fæ skilað.
Slilanefndin þreföld skuldar mér
skýringar sem hugurinn fær torgað.
Meðal annars: Afhverju var þér
svo alltof alltof alltof mikið borgað?
Slilanefndin skuldar þreföld mér
skýringar sem hugurinn fær torgað.
Meðal annars: Afhverju var þér
svo alltof alltof alltof mikið borgað?
Borgaðirðu borgarsjóði
brotastöðugjöldin?
Áttu nokkuð ennþá, góði,
eitthvað bak við tjöldin?