Fjallið Esja heillar hann
Halla, gamla brýnið.
Upp á það hann óður rann
en þá datt á trýnið.
Reikningar gefa ranga mynd
af rekstri banka
Reikningar gefa ranga mynd
af rekstri banka
Frá almenningi með erfðasynd
þeir auði sanka.
Upp þeir tóku í æ-seif skuld
eitthundrað og nítíu millur.
Upp þeir tóku í æ-seif skuld
eitthundrað og nítíu millur.
Ekki á hann Grímur gott,
enda sköllótt bæði.
Ég með parta fyrri fer
fáránlega illa.
Ég með parta fyrri fer
fáránlega illa.
Uppi karlinn þakka þér,
þeim má ekki spilla.
-----------------------------
Úr himna gáttum vatnið vellur
vorið góða á næsta leik.
Úr himna gáttum vatnið vellur
vorið góða á næsta leik.
Lappi augum mælir mellur,
mikið langar hann í sleik.
Nagladekkin undan eiga,
enn þótt snjói hverja nótt.
Nagladekkin undan eiga
enn þótt snjói hverja nótt.
Keðjur setja mun þó mega,
ef mikið skefur, títt og ótt
Vér skulum minnast mæðra vorra
Mjög þær þjáðust vegna oss.
Við skulum minnast mæðra vorra
mjög þær þjáðust vegna oss.
Og merar hestinn Snúllu Snora
snælduvitlaust óláns hross.
----------------------------------------------------
Nú ég geri betri botn
bæti ljóðasmíði.
Nú ég geri betri botn
bæti ljóðasmíði.
Og allir þeir sem eru skotn-
ir í henni Fríði
munu kvæðin meta vel
og margoft upp þau þylja.
Munu kvæðin mæta vel
og margoft upp þau þylja..
Sumar vísur tæpar tel,
tilfinningum ilja.
---------------------------------------------
Gamansögur fagrar fel
frægum skáldajöfrum.
Gamansögur fagrar fel
frægum skáldajöfrum.
Auðveldlega upp þá tel
sem á mig beita töfrum.
Páskalambið etið er,
einnig súkkulaðið.
Páskalambið etið er,
einnig súkkulaðið.
og með þetta eflaust fer,
alveg oní svaðið.
belgdur út með blút og kjöt,
brosandi og sáttur.
belgdur út með blút og kjöt,
brosandi og sáttur.
Stærri þarf að finna föt
er fitunnar eykst máttur.
Enn ein nóttin okkur hér
umvefur í myrkur.
Enn ein nóttin okkur hér
ummvefurí myrkur.
Billi góði þakka þér
þú ert ætíð styrkur.
-------------------------------
Áðan sá ég fagran fugl
flögrandi íbænum.
Áðan sá ég fagran fugl
flögrandi í bænum.
Óður söng hann eitthvert rugl
í ansi nöprum blænum.
Blóðsugurnar bíta þá
sem blóðið hafa sætt.
Blóðsugurnar bíta þá
sem blóðið hafa sætt
Óféin með brúna brá
blíðkast ekki neitt.
----------------------------------
Þeirra eru galdra glott
geigvæmlega ill.
Þeirra eru galdra glott
geigvæmlega ill.
Einnig líka ýmis plott
ákaflega snjöll.
Sæmdarréttur sýnist mér
svikinn vera í listum.
Sæmdarréttur sýnist mér
svikinn vera í listum.
Litlu, sætu blómin ber
burt í matarkistum.
Sóley er með bernaise best
og blóðberg margaríni.
Sóley er með barnaíse best
og blóðberg margaríni.
Afbragð fyrir góðan gest
og glóaldin með víni
---------------------------------
Glóðarsteik er hunangs holl
hraustra manna réttur,