Enter er hér með veitt heimild til útþurrkunar sjálfsins Sannleikurinn í Baggalútíu.
Sjálfið var skapað af mér fyrir rúmu ári síðan en ég þarf ekkert lengur á því að halda.
Þegar ég kvaddi þá var mér refsað fyrir að fara og þegar ég reyndi að fara eftir reglum var mér refsað jafnvel meira , svo ég ákvað að sjá þann kost vænstan að yfirgefa svæðið eftir heiftúðugar tilraunir til svívirðingar og tilraunir til að trufla námið hjá mér í skólanum og skemma fyrir mér í raunheimum.
Undirskriftalisti var búinn til og mér gerð grein fyrir því að www.baggalutur.is er ekki blogg.
Lögð eru fram drög að tillögu þess efnis í þessari beiðni , að gestapóinu verði lokað.
Enginn tilgangur er í því að reka eitthvað sem á að heita spjall ef allir eru á móti því að menn spjalli hvor við annan á eðlilegum nótum.
Það sér hver andlega heilbrigð manneskja.
Óvíst er hvort að sjálfið Sannleikurinn verði lokað en klárt mál er að ég sjái enga ástæðu til að notfæra mér þjónustu baggalútíu meira þar sem ég þekki engann hér svo ég viti til í raunheimum og tel að frekari tilraunir til að útskýra mínar ástæður til að vera hér muni aðeins gera illt verra.
Þá hefur verið staðfest að engum eigi að vera heimilt að nota www.baggalutur.is til almennra samskipta og styð ég það heilshugar.
Að öðrum kosti finnst mér sorglegt hversu miklum tíma þessar ógæfumanneskjur eru tilbúnar til þess að eyða í minn garð , hafi þær að öðrum kosti haft nokkra persónulega ástæðu til þess að skoða nein af mínum skrifum.
Eftir nokkrar símhringingar og rannsóknir var ég upplýstur um að líklega væri um fólk sem eigi sér enga vini í raunheimum að ræða.
Engar samskiptareglur eða reglur um síðunotkun hafa verið virtar í minn garð undanfarna daga , með tilheyrandi afleiðingum.
Engum get ég öðrum kennt um í því samhengi en sjálfum mér.
Fyrir þá sem vilja vita hvað hugtakið ´Baggalútur´þýðir , eru það steinaafbrigði.
Oneinei, baggalútar eru steinar.
Veistu Salli, ég er með hina fullkomnu lausn fyrir þig.
Sendu mér lykilorðið af þessu aukaegói í einkaskilaboðum og vandamál okkar allra eru úr sögunni.
bara óþarfi fyrir mig að vera að eyða meiri tíma í.
Enter má eyða þessu sjálfi hvenær sem hann vill.
Ókei rétt hjá þér með steinana.
takk sömuleiðis Hvæsi.
Eigðu góða daga og mun gæfan fylgja þér og Dulu.
Dula er ein sú íslenskra hvenna sem ég tel að hafi sterkustu og jákvæðustu sjálfsímynd fyrr og síðar.
Dula er ein sú íslenskra hvenna sem ég tel að hafi sterkustu og jákvæðustu sjálfsímynd fyrr og síðar.
Það er þó satt hjá þér.
Enginn tilgangur er í því að reka eitthvað sem á að heita spjall ef allir eru á móti því að menn spjalli hvor við annan á eðlilegum nótum.
Hér spjalla allir saman á eðlilegum nótum. Nema einn.
Bla bla bla bla. Númer hvað skyldi þetta kveðjuávarp hafa verið hjá Sannleikanum? Klórar sér í höfðinu
Kannski 666. Starir þegjandi út í loftið
Alveg þykir mér merkilegt hversu veruleikabrenglaður þú virðist vera. Sjálfsupphafningin stillt í botn, svo bara látið vaða á lyklaborðið.
Sannar það með hverju innlegginu á fætur öðru að þú ert ekki spjallsíðuhæfur (ath. ekki blogg-).
þið eruð fávitar og ég skrifast ekki á við fávita á internetinu.
Hver tekur eftir þversögninni?
Þetta er ekki þversögn, sannleikurinn skrifast ekki á við fólk. Hann skrifar.