Rakstu við svo rauk þar frekt
raunir nösin harmar.
Grænmetið þér gefur sekt,
gasi fyllast þarmar
Þarma mína mátt ei
mikið reyna að þjappa
þá í rassgats ræfils grey
ég reyni að setja tappa.
Tappa forðum tíkarrass
tók sér nafn ein dama
hún er ekki orðin skass
á þó nóg af frama.
Frama langar flesta í
en færri hans þó kenna
þó berömtið að bresta í
ég bara mundi ei nenna
Nenna skömmtuð naumt var mín,
nautlnalífið kýs ég helst.
Við slæpingshátt og slark og vín
og slíka iðju löngum dvelst.
Dvelst hann draumalandi í
dáleiddur og illa haldinn.
Utangátta á fanginn frí
frelsaður og illa baldinn.
Dvelst hann landi drauma í
dáleiddur og illa haldinn.
Utangátta á fanginn frí
frelsaður og illa baldinn.
Baldinn er á Bessastað,
brestur ekki kjarkurinn.
Fer nú þar sem finnst ey vað
forni vinnuþjarkurinn.
Vinnuþjarkurinn hamast af kynnginni og kraftinum.
Sem ketill í jarðskorpu gjósanda ólgar í raftinum.
Svo kemur hann heim eftir átökin vellandi í vinnunni
en veigrar sér þó ekki skyldurnar við gagnvart kvinnunni.
Kvinnunni Grímur gerði skil
glaður í bragði sagði.
Þettað árans fanta fyl
féll á eigin bragði
Bragðið af bjúgum hrossa
böðuðum upp úr hlandi
minnir á myglaða kossa
minnar fyrrverandi.
blessaður Hlebbi, þarna varstu á undan svo best að brjóna..
Andi minn á æðra flug
óðar lagði
er skötumynd mér hrökk í hug
hlands- með- bragði.
Bragði hákarls hampa kann
hrútspungana stýfi úr greip
saltkjöti og sviðum ann
súrmetinu eftir hleyp.
Hleypa skaltu heimdraganum
hittir þú þá einu réttu.
Upp frá því þú í maganaum
ert með sting, á fési grettu.
Grettið lítið gerpi er
nú greipt í allra minni.
er drýgði hann þá dáð með sér
að drepast öðru sinni.
Sinni kvinnu gerir gott
Grímur tófusprengur.
Af vana karlinn tekur tott,
er trítilóður drengur.
Drengir litlir dæsa hér
og dyngju mína verma
pilta þessa ekki er
enn búið að ferma.
Fermat ýmis fræði kunni
ferningstölur skoðaði.
Rúmfræðinni einnig unni
örsmæð þá hann boðaði.
Boðaði mig á fræðslu fund
fljótt ég tók við boðinu´.
Mætti eins og hund um hund
hortugur í roðinu.
Roðann í hári hennar sá
og hugsaði á meðan:
leynist sami litur á
lokknum fyrir neðan?