Hvernig á húsin að byggja?
Er Hólmfríður ennþá að tyggja?
Hvar á Lárus að liggja?
Liggurðu nú milli hryggja?
Er tímabært tröppur að moka?
Er Transylvanía að loka?
Er tímabært tröppur að moka?
Er Transylvanía að loka?
Hvað tengir presta við poka?
Er tímabært tröppur að moka?
Er Transylvanía að loka?
Hvað tengir presta við poka?
Er pilturinn ennþá að doka?
Hvað gerir bura svo breiska?
Berjið þið hestana treiska?
Hvað gerir bura svo breiska?
Berjið þið hestana treiska?
Kneyfið þið kaleikinn beiska?
Hvað gerir bura svo breiska?
Berjið þið hestana treiska?
Kneyfið þið kaleikinn beiska?
Komast öll fyrir í meis ka?*
* Ka = hrísgrjón á tælensku.
Ratast þér oft rétt á munn?
Rekst þú oft á Hemma Gunn?
Ratast þér oft rétt á munn?
Rekst þú oft á Hemma Gunn?
Er það rétt að byrgja brunn?
Ratast þér oft rétt á munn?
Rekst þú oft á Hemma Gunn?
Er það rétt að byrgja brunn?
Bjóðast þér nú -indi hlunn-?
Eru verðlaun varasöm?
Eru verðlaun varasöm?
Var þér lygin orðin töm?
Er þér konan oftast gröm?
Eru verðlaun varasöm?
Var þér lygin orðin töm?
Er þér konan oftast gröm?
Eruð þið á heljarþröm?