Hjer skulu fara fram vísindalegar athuganir á athyglisgáfu Sama. Er Sömum sama? Ef að í ljós kemur að Sömum sé sama , er spurning um við hvað er átt í því samhengi?
Geta verið til Samar sem er sama um að vera sama??
Þegar Kvenfélag Lúðrasveitar fór til Haparanda að láta Lappa upp á sig komust þær að því að engum stóð á Sama.
HA HA HA HA HA
Hahaha, það hefur löngum þótt fyndið og frumlegt að endurgera fréttir ritstjórnar.
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Hahaha, það hefur löngum þótt fyndið og frumlegt að endurgera fréttir ritstjórnar.
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Ó, var ritstjórn líka búin að stela þessum úldna brandara sem hefur verið á ferð í marga mannsaldra. Sei sei.
Hahaha, það hefur löngum þótt fyndið og frumlegt að endurgera fréttir ritstjórnar.
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Ó, var ritstjórn líka búin að stela þessum úldna brandara sem hefur verið á ferð í marga mannsaldra. Sei sei.
Vissulega er spaugið orðið aldrað en Ritstjórn tókst þó að fá mig til að flissa yfir kjánagangnum.
Samsamar sig
Ég er með Sama og mér er alveg nákvæmlega sama þótt þér sé ekki sama.
Hvaðan rekja Samar ættir sínar? Væntanlega til einhvers eldra Samalands en Samalíu........
Samar tala samisku, sem er finnsk-úgriskt tungumál og skyld m.a finnsku og eistnesku. Sumir telja að kynstofn þeirra sé eldra, að þeirs séu frumþjóð Skandinaviu sem tók að sér finnsktö úgriskt tungumál. Og mig minnir að leiðir finnsku og samisku hafa skilið meira en fyrir 2000 árum síðan.
Enda er svo kalt þarna norðurfrá nú eða ólíft fyrir flugu. Maður hefur ekki nent upp eftir síðan Sússi fæddist.
Ég get allavega sagt þér að Svíunum er slétt sama. Strunsar út af sviðinu og felur sig bak við gardínu.
Kiddi Finni þegar jeg segist vera sama um eitthvað er jeg þá sem sagt að tala samísku? Eða er það bara samviskan sem er slokkt á?
Getur verið að það sem allir Samar eigi sameiginlegt með sje að þeir búi yfir einhvers konar samvisku?
Þegar Sama er kalt hvernig tjáir hann sig?´Mjer er sama þó að mjer sje kalt enda er jeg jú Sami´?
Getur verið að Samar eigi erfiðara en aðrir með að komast í flug?
´Hæ jeg er frá Samalandi og ætla að panta flug til Serbíu. Nei mjer er ekkert sama um Serb.......halló? Halló? Andskotinn hafi það maður , þetta er 23ja flugmiðapöntunin sem fer úrskeiðis hjá mjer það sem af er árinu , jeg verð að breyta opinberlega um þjóðerni eða samfjelagserni eða hvað það nú heitir´.
Forynja hjer erum vjer að tala um Sama en ekki það að vera Sama um að vera með Sama eða að vera nákvæmlega Sama um að vera með Sama , heldur frekar að mönnum sje svona sljett og skítt Sama um það hvort öðrum sje nákvæmlega Sama um að vera með Sama eða ekki vera með Sama eða vera nákvæmlega Sama um að vera með Sama........