— GESTAPÓ —
Hvað er að vera ég?
» Gestapó   » Kveðist á
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 8/4/10 23:11

Að vera ég er varla gott
víst hef kvarnir lúnar.
Skrumfjarðar hef skítaglott
svo skín í tennur brúnar.

To live outside the law, you must be honest.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Bakaradrengur 9/4/10 00:40

Alltaf bæði og einatt ég
eintóm baka vandræði.
Flýti mér svo farinn veg
og frekar undið band snæði.

Hver hefur svo sem ekki ruglast á teskeið og kílói?
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst

Ekki veit ég upp á hár
út á hvað það gengur
best er vera bara smár
blíður góður drengur

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
lappi 9/4/10 17:58

Sagður er lappi furðu fýr
félagsskítur mesti.
Vesæl á sínu búi býr
bjargálna með hesti.

lappi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 9/4/10 21:56

Þess ber að geta að þessar vísur munu birtast utan á næstu afurð Brugghús Skabba... tek við pöntunum hér

Að vera ég er flókið, fínt og flott á daginn.
Já, loðinn þykir lopakraginn.

To live outside the law, you must be honest.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
lappi 9/4/10 23:36

Þessi ég er furðu fýr og frekar ljótur
gamansamur og sagður fljótur.‹›

lappi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 15/4/10 00:24

Ég er afurð eigin vonar,
eitthvað sem að þokast nær.
Ég er einnig einhvers konar
útgáfa af mér í gær.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Mjási 18/4/10 18:23

Þó mig prýði glottið gleitt
og glyrna stór á smetti.
Er ég svona yfirleitt,
upp í nös á ketti.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Megas 21/4/10 10:03

Að vera Megas.
Það er ég.

Jeg er Megas.
GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Staglari 21/4/10 18:18

‹Hrökklast aftur á bak og hrasar við›xT‹Starir þegjandi út í loftið›‹Ljómar upp›˛o

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Garbo 22/4/10 23:19

Ég er ei til nokkurs nýt,
nenni varla að anda.
Uppi í rúmi hrúga hrýt,
hroðaleg að vanda.

Þurfi nú að vinna verk,
vanda til þess mikið.
Þá ég mæti stór og sterk,
strýk svo á mér...vöðvana.

sígræn
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Heimskautafroskur 4/12/10 18:23

Af fasi mínu öllu fegurð skín
og frægðarljóminn borist hefur víða.
Greindar- víðkunn -vísitala mín
veldur því að ég fæ oft að stjórna fjarstýringunni á sjónvarpinu.

vér kvökum og þökkum
LOKAÐ
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: