Ekki hefur rétt svar borist ennþá
Ekki hefur rétt svar borist ennþá
En ertu búinnn að komast að því hvort staðurinn tilheyri Fljótdalshéraðinu? Þar eru tvö sveitarfélög; Fljótdalshérað og Fljótsdalur.
Er maðurinn einhverstaðar á hálendinu austanlands?
Kárahnjúkar hljóta það að vera, því sveitadrengur sunnan af landi þekkir tæpast annað á Austurlandi.
Hann er ekki á hálendinu.
Ekki hefur rétt svar borist ennþá
En ertu búinn að komast að því hvort staðurinn tilheyri Fljótdalshéraðinu? Þar eru tvö sveitarfélög; Fljótdalshérað og Fljótsdalur.
Er maðurinn einhverstaðar á hálendinu austanlands?
Það er erfitt að halda áfram að giska út í loftið án þess að fá svar við þessu, hvort hann sé í öðru hvoru þessara sveitarfélaga.
Ef staðurinn er ekki uppi á heiðum eða fjöllum hlýtur að vera nokkuð ljóst og jafnframt auðvelt að sjá hvaða sveitarfélagi hann tilheyrir.....
Við Héraðsflóa?
Nermal! viltu ekki bara segja okkur hvar maðurinn á að vera, þar sem þú þekkir greinilega ekki nóg vel til hér austanlands?
Er maðurinn í Vattarskriðum?
Ekki við Héraðsflóa
Ekki í né á Hróarstungu
Fann ekki Vattaskriður á kortinu mínu en Vattanes er allaveganna á sama korti í N1 Vegahandbókini minni
Hættu svo að skæla Golli.
Jedúddamía! Nermal er að spila þennan leik eftir ónákvæmu túristakorti af slóðum sem hann hefur aldrei komið á enda virðist hann ekki þekkja muninn á Hveragerði og Breiðdalsvík. Hann væri vís til að koma við á Patreksfirði á leið sinni til Kirkjubæjarklausturs miðað við hvernig hann les kortdrusluna. Hann er kannski bara að tala um Kárahnjúka sem hann telur vera í Fljótsdalnum því það eru engar hæðarlínur á bensínkortinu.
Já, ég er ekki einu sinni með kort en mundi eftir Vattar- eitthvað. Vattarnessskriður eru kannski til.
En ég giska á Seyðisfjörð.
Rugl, svona kort eru ekki seld á bensínstöðvum!
Það er víst seldur pilsner á bensínstöðvum. Ég kaupi hann oft til þess að skemmta mér betur undir stýri.
Annars þá finnst mér ómaklega vegið að Nermali fyrir að vita ekki hvort maðurinn er staddur á Fljótsdalshéraði eða ekki, sérstaklega ef gerð er krafa um að því sé svarað skv. ströngum sveitarfélagsmörkum.
Nú er lengi búið að vera mikið hringl með sveitarfélög á Austurlandi, og það var ekki fyrren nýlega að ég skildi, að á Héraði eru núna bara tvö sveitarfélög, sem v.a.m. heita bæði eftir sama dalnum. (Hversu asnalegt er það, ha?)
Svo að það er nú kannski óþarfi að frussa fimmta kaffibollanum útúr sér þó að Nermal sé ekki með allar heiðar og sveitamörk á hreinu; og þar fyrir utan, þá notast hann við vegakort Esso, sem tvímælalaust bendir til meiri landafræðikunnáttu en bæði Fréttablaðið og Stöð 2 búa yfir til samans.
Er maðurinn staddur innan við 2 km frá vegi með bundnu slitlagi?