— GESTAPÓ —
Hagyrðingar allra sveita sameinist
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 128, 129, 130 ... 455, 456, 457  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 3/9/04 15:43

Clinton lék það, kallinn sá
kunn'að höndla starfsmenn
ungar stúlkur einkum þá
Oval Office dró til sín í 'denn'

Bush og Blair eru
bandamenn, halda þeir

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Crick 3/9/04 19:36

Bush og Blair eru
bandamenn, halda þeir
Héld´að Írak bæru
hnoðuð vopn úr leir

Leirinn reyndist lúinn
og löngu útruninn

Bíð spenntur eftir titli.
 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 3/9/04 22:23

Leirinn reyndist lúinn
löngu útrunninn
Buss er líka búinn
bráðum með kvótann sinn.
------------------------------------
Puðar enn pjakkar
Palli frá Höllustað,

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Frelsishetjan 4/9/04 01:03

Puðar enn pjakkar
Palli frá Höllustað,
komið hérna krakkar
í kyndugt pjölluhlað

Krummi lævís kann
að kroppa hræið í

Drottnari allra vídda. Guð alls svalls. • Eigandi sálar hins Mikla Hákons. • Eigandi Nærbuxna. • Sjálfkjörinn formaður Ritstjórnar.
 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 4/9/04 15:22

Krummi lævís kann
að kroppa hræið í
fimur fuglinn rann
finnur lamb í dý.
--------------------------------


Frjálsir og fymir svífa
fuglar um loftin blá,

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 4/9/04 17:01

Frjálsir og fimir svífa
fuglar um loftin blá
Rándýr í sig rífa
rotnandi hræin hrá

Rándýr eru rándýr
rándýrabúðum í

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 4/9/04 21:06

Rándýr eru rándýr
rándýrabúðum í
Kýrin hún er kýrskýr
klárlega fyrir bí

Undan grefur efinn nú
aldrei mun ég vita

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Agúrkan 4/9/04 21:13

Undan grefur efinn nú
aldrei mun ég vita

Hvað það er að hvíla bú
Hvernig drekka er eigin svita

Svuntu hef ég sveiflað
Svelgt hef ég bjór

Hrjúf og hnúðótt húðin gæfi Agúrkunni sérstaklega aðlaðandi yfirbragð ef ekki væri fyrir fjólubláann blæinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 4/9/04 22:05

, Svuntu hef ég sveiflað
svelgt hef ég bjór
gapað svo og geiblað
gaulað í kirkjukór.

Hundurinn minn er hinnseginn
argur homma tittur,

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 4/9/04 23:57

Hundurinn minn er hinsegin
argur hommatittur
Allt er hér á hinn veginn:
Himneskur fúll pyttur

Tölum vér aldrei um oss
orðinu "ég" með

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 5/9/04 14:55

TÖLUM VÉR ALLDREI UM OSS
ORÐINU''ÉG'' MEÐ
Á FUKOF FALLEGT HROSS
FOLANN ÞANN HEF 'ÉG EI SÉÐ.

HELLI REGN VAR RÉTT Í ÞESSU
REIÐIR ERU VEÐUR GUÐIR

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 6/9/04 11:07

Helliregn var rétt í þessu
reiðir eru veðurguðir
Refsing ef ei mætir í messu
mikið þó stritir og puðir

Hryssingslegt haustið brátt
hellist yfir skerið

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Fíflagangur 6/9/04 11:26

Hryssingslegt haustið brátt
hellist yfir skerið
Bætir ört í hafið blátt
bölvað dropagerið

Vetur kemur, versnar tíð
váleg hrif á geðið

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Frelsishetjan 6/9/04 11:32

Vetur kemur, versnar tíð
váleg hrif á geðið
erfitt er, vinna það stríð
best er að yfirgefa skerið

kuldinn hér kominn er
kyrjar vetrar guðinn

Drottnari allra vídda. Guð alls svalls. • Eigandi sálar hins Mikla Hákons. • Eigandi Nærbuxna. • Sjálfkjörinn formaður Ritstjórnar.
 • LOKAР•  Senda skilaboð
massi 6/9/04 13:08

kuldinn hér kominn er
kyrjar vetrar guðinn
blæs þá boli aftur hér
bölvaður bastarðurinn

Drullar vetur drottnari
djöfullega á landið

Magnaður andskoti...
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Galdrameistarinn 6/9/04 14:31

Drullar vetur drottnari
djöfullega á landið
Fingur verða lopnari,
Frýs í manni hlandið.

Standa sperrtir símamenn
sem kaupa sjónvarpsstöðvar

Sofandi vert á Kaffi Blút nema þegar hann er vakandi. • Skemmdarverka og hryðuverkamaður í hjáverkum, aðalega á kveðskaparþráðum.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
hundinginn 6/9/04 14:54

Standa sperrtir símamenn
sem kaupa sjónvarpsstöðvar
sukkið sveypar landann en
svei hver þetta stöðvar

‹Klikkað á stuðlum...›

Vandlega þeir víla ey
við að pretta á líðnum

Eigandi Kaffi Blúts. • Lifi sannleikurinn!
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Frelsishetjan 6/9/04 15:02

Vandlega þeir víla ey
við að pretta á líðnum
skamm á svona. Svei!
steinum hent af skrílnum

brjálaður, Baugur er
af ensku bullu látum

Drottnari allra vídda. Guð alls svalls. • Eigandi sálar hins Mikla Hákons. • Eigandi Nærbuxna. • Sjálfkjörinn formaður Ritstjórnar.
LOKAÐ
        1, 2, 3 ... 128, 129, 130 ... 455, 456, 457  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: