hendir skó í Don
hafðu þetta!
Hefði ekki verið hægara um vik að fleygja skónum bara í Elliðaárnar?
Hvað með viðkvæmt vistkerfi ánna? Er þér sama um laxastofninni?
Hvaða andskotans rugl er þetta?
Strunsar út og fellir bankakerfið
hendir skó í Don
hafðu þetta!
Hefði ekki verið hægara um vik að fleygja skónum bara í Elliðaárnar?
Hvað með viðkvæmt vistkerfi ánna? Er þér sama um laxastofninni?
Aldeilis ekki. En sem glóbalvarmur alþjóðasinni og náttúruvinur á heimsvísu hef ég líka áhyggjur af löxunum í Don.
Hlebbi er svo mikill laxavinur að hann vill fara að kenna þeim að ganga í skóm.
Ég hef hér með ákveðið, í samræði við sjálfan mig eftir stórkostlega notkun allra þeirra fríðinda sem fylgja öllum þeim embættum sem ég tímabundið hafði á að ráða, ákveðið að afsala þeim öllum. Nema hvað, ég vil halda nýbúarassskellingunum áfram. Það er alltaf svo geysilega gaman.
Í stað þessarra embætta hef ég hins vegar ákveðið af einskærri hógværð að taka að mér formlegt embætti sem Stórlax heimsveldisins. Af því að ég og Hlebbi erum svo góðir vinir sko.
Hvern fjandann ertu að gera með ræfla eins og td. Limbra á meðan að þú gerir ekki snillinga eins og Órækju að heiðursráðherra?
Ég er sko löngu búinn að reka Limbra úr sínu starfi skal ég sko segja þér! Með skömm í hatt og kúk í poka! Það sver ég sko uppá rándýru Sennheiser heyrnartólin mín! Ég er sko ekki alger fáviti, þótt að ég eigi það til að vera fífl.
Hins vegar kemur það bara vel til greina að Órækja fái eitthvað gott embætti, en ég nenni nú varla að standa í svoleiðis rugli lengur enda vaxinn úr svoleiðis vitleysu og vísa því öllum slíkum fyrirspurnum rakleiðis til forsetans.
Eða Enters. Signar sig (niður og til vinstri, eins og hinn heilagi takki á lyklaborðinu virkar)
Ég er ekki dauður úr öllum æðum, var bara læstur niðrí dýflissu að ömm...spila skák þegar allt hrundi og hef dúsað þar fram að þessu. bendir á dagbókarfærslu.
En nú hef ég snúið aftur! stofnar nefnd af gleði
Jeg undirritaður sæki hjer með vinsamlega og kurteisislega um að gjörast hinn illi keisari Baggalútíu.
Baggalútía hefði gott af einum illum keisara.
Menn verða nú ekki keisarar sísvona. Núverandi keisari, Mikill Hákon, var nú einn upphafsmanna byltingarinnar sem steypti hinu íslenska lýðveldi af stóli einhvertíman á því herrans ári 2003. Hann Hákon hefur nú ekki látið sjá sig í allnokkurn tíma en í fjarveru hans hefur (að mig endilega minnir ) He... Svartur jeppi kemur aðsvífandi og snarhemlar rétt fyrir framan Gogginn Dökkklæddir menn koma að Goggnum, múlbinda hann og koma honum fyrir í skotti bifreiðarinnar
Dökkklæddur maður, kyrfilega merktur ÖLÍS stígur úr bifreiðinni, spókar sig um og ávarpar mannfjöldan Vinsamleg ábending til þegna Baggalútíu. Aldrei skal tala um stjórnskipan heimsveldisins við skítugan almúgan! Það er einfaldlega of hættulegt, þar sem óvinir ríkisins geta auðveldlega komist að slíkum hernaðarleyndarmálum við slík tækifæri þar sem útsendarar þeirra eru allsstaðar! Látið ykkur þetta að kenningu verða!Stígur aftur upp í bifreiðina sem brunar burt
Önnur bifreið, öllu minna glæsileg kemur, hægir á sér, fleygir svörtum ruslapoka út um afturdyrnar og brunar svo burt Goggurinn rífur sig úr þessum poka Jæja, hvað var ég að segja?
Já, heill sé okkar þrískipta ríkisvaldi; keisara-, konungs- og forsetavaldi! Í fjarveru eins þeirra, verða hin tvö einfaldlega þeim mun sterkari!
Þjer eruð einn maður með mikið af embættum að gjöra við.
Kannski er hægt að útvega embættistitla handa aðeins fleirum??
Mér finnst að Don eigi bara að vera ruslakarl!
Einfaldasta lausnin á því vandamáli er að endurskilgreina merkingu nokkurra orða.
Listi sá er birtur er í upphafsinnlegginu er til bóta að því leyti að í embættum þeim er þar eru talin upp er gert ráð fyrir virkari Gestapóa en áður var. Þó eru ekki alveg allir þeir er upp voru taldir alveg horfnir. Hinsvegar skorum vjer á gesti hjer að sækja um einhver þessara embætta þar eð tilgangur þess að hafa þennan gríðarlega fjölda embætta er m.a. sá að hindra að baggalútíska heimsveldið verði tímabundið óstarfhæft þó einum og einum ráðherra eða embættismanni sje rænt af óvinum ríkisins.
Vér komum að sjálfsögðu af fjöllum enda fullvirk sem hálendismálaráðherra.
Jeg undirritaður sæki hjer með vinsamlega og kurteisislega um að gjörast hinn illi keisari Baggalútíu.
Baggalútía hefði gott af einum illum keisara.
Ég styð þetta. Mikill Hákon er góður keisara (sem marka má af stöðugri fjarveru hans). Það er bara til bóta að hafa illan keisara til mótvægis. Ég veit heldur ekki betur en að gestapóum standi almennt stuggur af Salla og því ljóst að hann hlýtur að vera yfir meðallagi illur.
Eigum við ekki bara að afgreiða þetta mál, ha?
Salli: þetta er ekki formleg afgreiðsla, bara frumvarp. Þú mátt ekki titla þig að svo stöddu.
Fyrir hönd Ungmennasambandsins og einnig hreppsnefndar Ýsufjarðar get ég ekki samþykkt þessa tillögu. Mikill Hákon er fullfær um að ganga jafnt til illra og góðra verka.
Fyrir hönd heilbrigðrar skynsemi held jeg að það væri kominn tími til þess að vera tilnefndur ´hinn illi keisari Baggalútíu´. En hlewagastiR hefur lög að mæla. Jeg hef því fjarlægt upprunalega keisaratitilinn. Ljóst er að hjer eru margir skíthræddir við mig og yrðu enn hræddari ef jeg gengi lengra en Palpatínus og færi bara einfaldlega alla leið - en að vísu að sjálfsögðu að fullu samþykki þeirra sem raunveruleg völd hafa í Baggalútíu.
HlewagastiR yrði sem sagt áfram konungur Baggalútíu , og í fyrsta sinn í veraldarsögunni kæmi keisari sem er raunverulega vondur og sem einfaldlega viðurkennir það opinberlega. En eins og hlewagastiR segir þá má jeg sem sagt ekki taka mjer upp opinberann titil sjálfur í Baggalútíu.
Get samt ekki annað en hlegið að þessu öllu saman!
Hvað er í gangi hér. Helvítis langlokur eru þetta alltaf hreint?
Sannleikur ? Ég velti því fyrir mér. Fórst þú einhverntímann í innflytendahliðið og varst siðaður til ? Því þú ert ekki að haga þér sómasamlega. Ó sei sei nei.
Jú en það var eiginlega áður en Innflytjendahliðið var stofnað.
Jeg er ekkert mikið að hugsa um þetta með illa keisaratitilinn núna en biðst velvirðingar finnist yður sem að jeg hafi ekki hagað mjer skynsamlega í þessum þræði.