Á mínu nafnspjaldi stóð jólakveðja síðan í janúar eða eitthvað, en hún hljómaði eitthvað á þessa leið: "Ég ætla að vera snemma í jólakveðjunum í ár. Gleðileg jól krúttin mín, og aðrir síður krúttlegir"
Vegna umræðunnar hjer vekjum formlega athygli á að jólakveðja þessi er til hreinnar fyrirmyndar Ljómar upp eins og plútóníumjólatrje. Þeir gestir hjer sem sjá ástæðu til að nota tiltekið orð í jólakveðjum sínum ættu sjerstaklega að taka eftir lokum kveðjunnar. Ef búið væri að setja lög um jólakveðjur í Baggalútíu væri þessi kveðja í samræmi við þau (en væri síðustu fjórum orðunum sleppt væri kveðjan hinsvegar ólögleg).
Hólkur Fretsson, einkarekinn
Eggjakvaksgötu 12
Handan Við Hornið
Hinumegin Brosins
Hrútspungasýslu
Fróninu Fræga