Er á leið á Alka hól
Ætlið þér að koma með?
Mótmæli við minnsta gól
minnist ég að hafi skeð.
Hrekkjavakan var í gær
við það fór ég búning í.
Hrekkjavakan var í gær
við það fór ég búning í
Eg var heilög María mær
Mín var spúsa þrumuský
Bjóða vil ég Baggalútum
bragðsterkt te á morgun
Bjóða vil ég Baggalútum
bragðsterkt te á morgun.
Síðan nokkrum staupum stútum
og strippum fyrir borgun.
Einstök var sú unaðsstund
í örmum þínum blíðum.
Einstök var sú unaðsstund
í örmum þínum blíðum
er ég fékk sem barn mér blund
barmi móður þýðum.
Ég er sagður vera á velli
vísast eins og belja á svelli
Ég er sagður vera á velli
vísast eins og belja á svelli.
Ég held ég deyji ekki úr elli,
allt of marga hlýt ég skelli.
Þegar vindur veður um
veröndina, rakur.
Þegar vindur veður um
veröndina, rakur,
upphefst bænda fát og fum
en frekar ég er spakur.
Ástin hefur ótal myndir,
sem of langt væri að rekja.
Ástin hefur ótal myndir,
sem of langt væri að rekja.
lostafullar líkamssyndir
líklegast mun vekja.
Langt er síðan leit ég inn,
löngum gleði hérna finn
Langt er síðan leit ég inn,
löngum gleði hérna finn,
þegar nóttin dreyradimm,
dapran sefar huga minn.
Þunglyndið er þrauta mest.
Þynnkan mælist númer tvö.
Þunglyndið er þrauta mest.
Þynnkan mælist númer tvö.
lækar bæði lýti best
lýsishylki að gleypa sjö.
Skammsýni í skammdegi
skekkt hefur sýn
Skammsýni í skammdegi
skekkt hefur sýn.
Alfarið í öndvegi;
ástir og vín.
Áfram veginn vil ég halda,
þó víða leynist pyttirnir.
Áfram vegin vil ég halda,
þó víða leynist pyttir
Í þæfings færð og kólgu kalda,
konan ein og stráka tittir.
-------------------------------------------
Til Vestmannaeyja mín liggur leið,
loks á vertíð haldið
Til Vestmannaeyja mín liggur leið,
loks á vertíð haldið.
Breiði á kletta skemmda skreið,
skríð svo inn í tjaldið.
Undur stór og óskapleg
urðu á mínum vegi.
Undur stór og óskapleg
urðu á mínum vegi.
Mjög var ógnin ógeðsleg,
óvættur ég segi.
-----------------------------------------------
Út á -nesið Langa- lítur
ljúfurr ungur bóndason.
Út á -nesið Langa- lítur
ljúfurr ungur bóndason.
Leysir belti af brók og skítur
brosir, eins og hans er von.
Einatt bóndi upp á fer
ærnar, kýr og smalann
Einatt bóndi upp á fer
ærnar, kýr og smalann
sérstaklega ef þau er-
u að reyna að fal'ann.
Ef að nærðu góðu gripi
gakktu þá á lagið.
Ef að nærðu góðu gripi
gakktu þá á lagið
Þú æðir um á andans hripi
edrú annað slagið.
Slípast saman stál og steinn
strengur rís í vatni.
Slípst saman stál og steinn
strengur rís í vatni.
Líka,trú og hugur hreinn
hreinleiki og natni.
---------------------------------
Forviða og dapur dvel
dagana langa.
Forviða og dapur dvel
dagana langa.
Auraleysið ennþá hér
og aðhaldið stranga.
Þingmenn bara þusa hér
þótt þeir sjái vandann.