Einn ég sit og sakna
söngs og víns og blóma
Erfitt var að vakna
með vínflöskuna tóma.
Gleðin hér í gærkvöld
gerði okkur þunna.
Gleðin hér í gærkvöld
gerði okkur þunna.
Náðust af mér nærhöld,
nú er kát hún Gunna.
Víst er þunnur þrettándi
ef þrætur engar finn ég.
Víst er þunnur þrettándi
ef þrætur engar finn ég.
Rök ég góð hef rétt Þrándi;
rifrildið nú vinn ég.
----------------------------------------
Endar saman ekki ná.
Endalaust er stritið
Endar saman ekki ná.
Endalaust er stritið
Lítil vinna fátt að fá
svo fólkið missir vitið.
Undraverður árangur
eflaust mun samt nást.
Undraverður árangur
eflaust mun samt nást.
Burt mun fjúka fjár-angur
& fátækt hvergi sjást.
----------------------------------------
Ísland, frónið frítt & hvítt;
farsældanna móðir
Ísland, frónið frítt & hvítt;
farsældanna móðir
Þar er alltaf ofurhlýtt
og allir menn þar góðir.
Elska ég mitt ættarland
íslandið mitt góða.
Elska ég mitt ættarland,
íslandið mitt góða.
Núna merkir nóló grand,
nú er sko allt í gróða.
----------------------------------------
Ljótt er fagurt, fagurt ljótt
& fram nú kallast aftur
Ljótt er fagurt, fagurt ljótt
& „fram“ nú kallast „aftur“
Oft er talað um það hljótt
að afllaus sé nú kraftur.
Orkubúið endalaust
aurum nú af leitar.
Orkubúið endalaust
aurum nú að leitar.
Eftir svona hrollkalt haust
hlýja konur feitar.
Víða eru vífin fríð
sem vilja okkur gleðja.
Víða eru vífin fríð
sem vilja okkur gleðja.
Konan mig í kuldatíð
með kjötsúpu vill seðja.
Æfiskeiðið öllum hjá
endar fyrr en varir.
Æfiskeiðið öllum hjá
endar fyrr en varir.
Landatársins lipurtá
liðkar ellihjarir.
Þegar vetrar vaknar þrá
í vætu, glas og drauma.
Þegar vetrar vaknar þrá
í vætu, glas og drauma.
Þá er ekki af & frá
í sig sjúss að lauma.
----------------------------------------
Drekkum þetta, drekkum hitt,
drekkum allt sem rennur
Drekkum þetta, drekkum hitt,
drekkum allt sem rennur.
Á meðan leikur langspil mitt
um Lundúnir, sem brennur.
Taka skaltu ábyrgð á
öllum þínum syndum.
Taka skaltu ábyrgð á
öllum þínum syndum.
Við því segi jamm og já
með jólasveina kindum.
_------------------------------------
Börnum finnst hann Gói góður,
gamansamur er drengur sá.
Börnum finnst hann Gói góður,
gamansamur er drengur sá.
En að renni til hans ríkissjóður
raunar finnst mér af og frá.
Efstaleitis eymdarbragur
angur vekur heilli þjóð.
Efstaleitis eymdarbragur
angur vekur heilli þjóð.
Andinn verður meyr og magur,
magnast fýla og iðrahljóð.
Gufan vort er virkið eina,
vambsíðum íhaldspungunum.
Gufan vort er virkið eina,
vambsíðum íhaldspungunum.
Íslenskunni á sér skeina
útlendir - með tungunum.
Framtíðin er frekar björt,
flestir vilja halda.
Framtíðin er frekar björt
flestir vilja halda.
Nema mín er niðasvört
nornir þessu valda.
Er á leið á Alka hól
Ætlið þér að koma með?