Gegnum harða heimskuskel
hann sá loksins trúarljós.
Samt ég gaurinn tæpan tel
tilbúinn að send'í fjós.
------------------------------------
Nú er kominn kuldaboli
krakkar búið ykkur vel.
Nú er kominn kuldaboli
krakkar búið ykkur vel.
Nema þið búið að Bergþórðshvoli;
bálið þá ég duga tel.
Tónlistarhúsið Harpa,
helvíti er það ljótt.
Tónlistarhúsið Harpa,
helvíti er það ljótt.
Þar munu karlar karpa
um kvenfólk og brókarsótt.
Þegar kórar syngja sætt
um sólskin, vor og fífla
Þegar kórar syngja sætt
um sólskin, vor og fífla,
þá er vetur, verður klætt
velflest fólk í hnýfla.
Bergþórður hét bóndi einn,
bjó hann vel á Hvoli.
Bergþórður hét bóndi einn,
bjó hann vel á Hvoli.
Önnur konan hans hét Hreinn,
hin hét Kolamoli.
---
Bráðum skortir skólana
skammt af kristnum gildum.
Bráðum skortir skólana
skammt af kristnum gildum
Við til þess fengum fólana
Fjandans, því við vildum.
Börnum þeim er bezt að drekka
blátært vatn úr fjallalind
Börnum þeim er bezt að drekka
blátært vatn úr fjallalind.
Þú er mikil manvitsbrekka
og maður laus við alla synd.
Eitt sinn bjó í Búlgaríu
blessunin hún Ásdís Rán.
Eitt sinn bjó í Búlgaríu
blessunin hún Ásdís Rán
Leitar nú að lífi nýju,
lystsemda kemst vart án.
Oft er unnt að megna
einskis nýt þau verk.
Oft er unnt að megna
einskis nýt þau verk.
fáu gagni er gegna
og gleymast lítið merk.
Betra er þá við bjóra
að byggja lífsins verk
Betra er þá við bjóra
að byggja lífsins verk;
við lífsgátunnar ljóra
er ljúft að væta kverk.
----------------------------------------
Fátt er í heiminum betra en bjór,
sá blessaði hamingjudrykkur
Fátt er í heiminum betra en bjór
sá blessaði hamingjudrykkur.
Af honum verðurðu sterkur og stór
stæltur en bölvaður gikkur.
---------------------------------------
Carlsberginn góði sá göfugi mjöður
gulleitur rennur um kverkarnar vel.
Carlsberginn góði sá göfugi mjöður
gulleitur rennur um kverkarnar vel.
Af höfugri vímunni himnanna föður
hittir þú; verður þá ekki um sel.
Kemur bráðum kvennafrí,
þá karlar leggjast veikir.
Kemur bráðum kvennafrí,
þá karlar leggjast veikir;
við femínismans frelsis-þý
flestir virðast smeykir.
----------------------------------------
Vetrar konungs valdatíð
víst er upp nú runnin
Vetrar konungs valdatíð
víst er upp nú runnin
Kemur nú með kalda hríð
kalin jörð frostbrunnin.
Lon og don með hret og hret
harður vetur mætir.
Lon og don með hret og hret
harður vetur mætir.
Hann sendr á oss fílu fret
fjúk sem engan kætir.
------------------------------------------
Fagurt veður í Vestmannaeyjum
vonandi helst það enn um sinn.
Fagurt veður í Vestmanneyjum
vonandi helst það enn um sinn
Lýgur þú, en satt vér segjum:
Sunnan átt er þar mjög stinn
Reyndi að leyna löstum mínum
Langar mig að sýnast góður.
Reyndi að leyna löstum mínum.
Langar mig að sýnast góður.
En mörgum olli magapínum,
mikið nammi er minn helsti ljóður.
Ef þú kemur upp til mín
með áfengi í flösku
Ef þú kemur upp til mín
með áfengi í flösku.
Þá upp á, Billi, bara grín
ég brenni þig til ösku.
Einn ég sit og sakna
söngs og víns og blóma