Fyrri part ég færi þér.
Fáðu botn í hann.
Skelvileg og mæða mér
meira víst ekki kann!
_--------------------------------------
Fyrri part ér stíla strags
strumpist til að botna.
Fyrri part ér stíla strags
strumpist til að botna.
Ef þú grípur engan lags
þú átt það til að blotna.
Galtómt starir glasið mitt
á gular tennur mínar.
Galtómt starir glasið mitt
á gular tennur mínar.
það er góði Skabbi skitt,
skol og ger'þær fínar.
--------------------------------
Gengið hefur grýttan veg
Gvendur pína lengi.
Gengið hefur grýttan veg
Gvendur pína lengi
Á baki situr sjoppuleg
Sússa, viðurhengi.
Ýmislegt ég elda vel,
einkum bjúgu.
Ýmislegt ég elda vel,
einkum bjúgu.
Þá ég aftur upp þeim sel
í þau fara hár sem gel.
Upp í loft ég tánum treð
og tek mér blund.
Upp í loft ég tánum treð
og tek mér blund.
Það sem mér er þvert um geð
er þessi stund.
Er möruna ég máttlaus tróð
um morgunstund.
Er möruna ég máttlaus tróð
um morgunstund.
Fældist burtu fákastóð
og fór í sund.
Draumar enda oft hjá mér
úti í móa.
Draumar enda oft hjá mér
út í móa.
Og þá tíni úlfaber
er þar gróa.
Mysan er í minni sveit
mikið nýtt í brugg.
Mysan er í minni sveit
mikið nýtt í brugg
Í kútinn árinn Skúli skeit
skelving vakti,og ugg.
-----------------------------------
Og lortarmir flutu umm víðan völl
vodur reyndist fnykurinn.
Og lortarmir flutu umm víðan völl
vodur reyndist fnykurinn.
Skítug svo við urðum öll,
allt þó bætti sykurinn.
Klístrast allt sem kem ég við,
krakkar, bollar, hurðir.
,
Klístrast allt sem kem ég við,
krakkar,bollar hurðir.
Veltu þér á hægri hlið
hægðar draumar,smurðir.
--------------------------------
Vetur brátt í garðinn gengur
glettinn er karlinn sá.
Vetur brátt í garðinn gengur
glettinn er karlinn sá.
Ertu galinn orðinn, drengur?
Ertu viti frá?
Myrkt er úti myrkt mér hjá
myrkur hug minn sveipar.
Myrkt er úti myrkt mér hjá
myrkur hug minn sveipar.
Maður sem að enga á,
aleinn hamstur teipar.
Einmennskuna enginn vill
allir félag vilja.
Einmennskuna enginn vill
allir félag vilja.
Halta meri holdmikill
hestur er að fylja.
- - - - -
Líkur sækir líkan heim
líka mann & annan
"Líkur sækir líkan heim
líka mann & annan."
Oft það hef ég heyrt frá þeim
sem höndla vísdóm sannan.
Hugfast skaltu hafa það
sem hönd og anda næra.
Hugfast skaltu hafa það
sem hönd og anda næra,
gott er að fara í gufubað
með gellu milli læra.Starir þegjandi út í loftið
Bregðast krosstré býsna oft
bagi er að þessu,
Bregðast krosstré býsna oft
bagi er af þessu.
Er þig skortir lífsins loft
laumastu þá í messu.
------------------------------------
Piparkerling bröltir brátt
beina leið til Kína.
Piparkerling bröltir brátt
beina leið til Kína
Hana negla áður átt;
ástmey gera þína.
Gegnum harða heimskuskel
hann sá loksins trúarljós