34 Frumaukrímað
Hryssingslegt er fossaflet
flýtur laxaroðið.
Hungrið seðjar hrossaket
hangið, reykt og soðið.
Næst: 35 - Síðhent
35. Síðhent
Hjartað mitt nú hraðar slær
hestur kyssir metið.
Því nú veldur blíður blær
og bragðgott hryssuketið.
Næst 36: Hályklað
36. Hályklað
Hland úr merum meðal flott
Margan læknar kvilla
Blandað feiti geysi gott
gikt það nær að stilla
Næst: 37 - sléttubönd, óbreytt.