Kneyfar flokkur knárra sveina
og kátar meyjar fjörlegar
tylla rétt í tána eina
telja sig svo ölvaðar.
Í Tasmaníu víst er vor
þá veður september í hlað.
Í Tasmaníu víst er vor
þá veður september í hlað.
Dirfsku bæði þarft og þor
til þess að segja okkur það!
---
Marga hrjáir hatrömm pest,
sem hori vætir nef.
Marga hrjáir hatrömm pest,
sem hori vætir nef.
Fjallagrösin gagnast mest
og geta læknað kvef.
Hér er engin sumarsól
suddi rok og þoka.
Hér er engin sumarsól
suddi rok og þoka
Ég hef tapað kalli og kjól
kyrkju, hempu og poka.
Eigi vill hann eta með
örgum, Jens av Rana
[/i]
Eigi vill hann eta með
örgum jens af Rana.
Hafði ei þessi garmur geð
á gömlum sviðnum hana.
----------------------------------------
Inn til búða glaður gekk
garpur einn með reku.[/s][/g]
Inn til búða glaður gekk
garpur einn með reku.
Svo á barnum bjáninn hékk
og bergði á glasi leku.
Haustið kom og hófi sínum steig
á heimangötur; malarborin stræti.
Haustið kom og hófi sínum steig
á heimangötur; malarborin stræti.
Skeifuförin mjöllin hljóð í hneig,
húmklætt kulið elti létt á fæti.
Skráfa lauf en skáldin fara öll
skjálfandi að yrkja ljóð á kvöldin
Skrjáfa lauf en skáldin fara öll
skjálfandi að yrkja ljóð á kvöldin.
En loftið kljúfa og þeysa umm
víðan völl;
vinstri menn og halda í bókarspjöldin.
----------------------------------------------------------
Áðan mig dreymdi skrítinn draum,
datt svo framm úr fleti.
Áðan mig skrítinn dreymdi draum,
datt svo fram úr fleti.
Draumsögu svo með lymskulaum
laga svo botnað geti.
Í dag er bjart þó dimmi skjótt
og dauf nú gerist kvöldin,
Í dag er bjart þó dimmi skjótt
og dauf nú gerist kvöldin.
Mér er sama og raunar rótt,
Regina hefur völdin.
-------------------------------------------
Til margra hef ég sóma sótt,
sóknaar vina minna .
Til margra hef ég sóma sótt,
sóknar vina minna.
En þegar hverfist kvöld í nótt,
kem ég mér til hinna.
Ó, mitt kæra, blessað bílalán!
Brátt ég fæ að greiða af þér á ný!
Ó, mitt kæra, blessað bílalán!
Brátt ég fæ að greiða af þér á ný!
Hæstarétti, Íslands æðstu smán!,
okkur tekst að sökkva í forardý!
Fallbeygingin furðuleg
finnst í Hæstarétti. ..............(Hæstiréttur um Hæstarétt.)
Fallbeyingin furðuleg
finnst í hæstarétti.
Efasemdar,dómin dreg
dapur, þettað frétti.
---------------------------------
Fyrri partinn færi þér
frjáls með vísubotnin,
Fyrri partinn færi þér
frjáls með vísubotnin,
Botninn eins og úldið smiér
enda vantar rímiorð hér.
Land rover og Lada sport
landsins vegi þekkja.
Land rover og Lada sport
landsins vegi þekkja.
Hér er loksins um þá ort
án nokkurra hrekkja.
Ferðast hef ég frekar langt,
í flugið hinsta styttist.
Ferðast hef ég frekar langt
í flugið hinsta styttist.
Það verður bæði stíft og strangt
staflaus .þið eflaust hittist.
-------------------------------------------------
Veðrið okkur góða gefur
gæskuríkur skaparinn.
Veðrið okkur góða gefur
gæskuríkur skaparinn,
þá inni´ í bæli bullan sefur,
blíðulausi taparinn
Ég vil fólki gefa gjafir
og greiða´ úr allra málum.
Ég vil fólki gefa gjafir
og greiða úr allra málum.
meðan í skrokknum lífið lafir
á lífsins braut og vegi hálum.
----------------------------------------
Öllum vill hann gera gott
og greiða allra vanda.