— GESTAPÓ —
Hagyrðingar allra sveita sameinist
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 125, 126, 127 ... 455, 456, 457  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Fíflagangur 29/8/04 14:16

Hraustir eru Hvergerðingar
hreystimerkin á þeim sjást
Skakkir eru Skagfirðingar
skynsemi þeir af ei þjást

Fyrripartar þurfa fjandakornið
að fylgja málfarsreglum

 • LOKAР•  Senda skilaboð
venni vinur 29/8/04 18:30

Fyrripartar (þurfa) fjandakornið
(að) fylgja málfarsreglum
Sjáirðu ei fyrir handan hornið
hefurðu not af speglum.

Næmi fyrir lengd á línum
er listagóður kostur.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Fíflagangur 29/8/04 21:34

Næmi fyrir lengd á línum
er listagóður kostur.
Staðfastleg'á staurnum mínum
stórgóður er ostur

Stundum þarf að hafa línurnar langar
ef liggur þér mikið á hjarta
Ef það geng'ekki þá væru reglurnar rangar,
svo reyndu að hætta að kvarta

Fríður er frerinn
á Fróni

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 29/8/04 21:49

Fríður er frerinn
á Fróni
Fríða fer inn
hjá flóni

Línur geta ljótar verið
langar ef þær eru

‹Veltir fyrir sér hvort þetta falli undir aðfinnslur vegna kláms›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Fíflagangur 30/8/04 10:40

Línur geta ljótar verið
langar ef þær eru
Varla ber nú keim af kverið
kvenmannsholdi beru

Línur eru laglegar
læra, rass og mjaðma

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 30/8/04 11:30

Línur eru laglegar
læra, rass og mjaðma
kíla vilja kinn þegar
konur ég vil faðma

Áka vítis drauma dós
deyfir lýti kvenna

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 30/8/04 12:08

Áka vítis drauma dós
deyfir lýti kvenna
Virðist yður drusludrós
draumur, má það víni kenna

Fjandinn, búið fríið er
fara verð að vinna

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð
Smali 30/8/04 14:01

Fjandinn, búið fríið er
fara verð að vinna
sýp í laum´á séniver
sálinni að brynna.

Vinna þessi veldur mér
varanlegu tjóni

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Heillar 30/8/04 17:08

Vinna þessi veldur mér
varanlegu tjóni
svo klúran þrái kveðskap hér
því klámlaus engist dóni.

Núna braginn brelluríkan
ber að gera um veður.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Fíflagangur 30/8/04 17:29

Núna braginn brelluríkan
ber að gera um veður
Alls ekki má yrkja: píkan
ótti, losti, reður

Núna braginn brelluríkan
ber að gera um veður
Upplifað hef ég aldrei slíkan
ofsabyl á leður

þeyttist á þriðja hundraði
þrælvafinn í skinn

‹´Mótorhjólavísun sko›

 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 30/8/04 20:53

Þeyttist á þriðja hundraði
þrælvafinn í skinn
hendist um á hundavaði
horngrítis álfurinn.
------------------------------

Þetta finnst mér rosa ferð.
Fíbblagangur, í meira lagi

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Fíflagangur 31/8/04 08:10

Þetta finnst mér rosa ferð.
Fíbblagangur, í meira lagi
Rauk þar græja að R-1 gerð
Rokna Yamahaji

Afvatna þarf allt mitt geð
Ofneysla af hraða

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Heillar 31/8/04 10:17

Afvatna þarf allt mitt geð
Ofneysla af hraða.
Milli læra mótorsstreð
meyju gerir glaða.

Var ekki örugglega stelpa með þér á hjólinu, Fíbblagangur?

Fákur milli fóta er
ferleg verður reiðin.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 31/8/04 11:17

Fákur milli fóta er
ferleg verður reiðin
glaðbeittur um göngin fer
greiðfær verður leiðin

Vítisengla fríðan flokk
Fíbblaganginn vantar

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 31/8/04 12:07

Vítisengla fríðan flokk
Fíbblaganginn vantar
og Bandidos í næstu blokk
bévítans fantar

Hér eru brjálaðir bófaflokkar
byssumenn og þjófar

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 31/8/04 14:56

Hér eru brjálaðir bófaflokkar
byssumenn og þjófar
Omega drottins drullusokkar
dæmast verri bófar

Hells Angels herlega vængi
hafa í bak og fyrir

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nafni 31/8/04 17:04

Hells Angels herlega vængi
hafa í bak og fyrir
Þó Banditos berlega sængi
blóðugir ofan og yfir

Syngjum allir systraþel
Syrgjum vora lesti

 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 31/8/04 17:56

Syngjum allir systraþel
syrgjum vora lesti
mér sko verður ekku um sel
stubburinn minn besti.
------------------------------------

Úti vindur votur blæs
versnar ennþá spáinn,

LOKAÐ
        1, 2, 3 ... 125, 126, 127 ... 455, 456, 457  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: