Flokksklíkuforingjavald
er flórmigu líkast.
Og þeirra mógrafa mald
af mótsögnum ríkast.
Ösku hóstar Eyjafjallajökull
ætl'ann hafi sýkst af streptokokk
Ösku hóstar Eyjafjallajökull
ætl'ann hafi sýkst af streptokokk.
Og mökkurinn er skuggalegur skökull.
Skyld'ann ekki kunn'að nota smokk?
Af eldstöðvum eigum við nóg,
sem af og til lát'í sér heyra.
Af eldstöðvum eigum við nóg,
sem af og til lát'í sér heyra.
Við ættum að upprækta skóg
svo endi hér sultur og seyra.
Þegar aðeins orðin tóm
okkar fylla maga
Þegar aðeins orðin tóm
fylla okkar maga.
Tygg ég þau með gerfi góm,
grautfúll út í haga.
---------------------------------------
Vorið er komið og gæsirnar gagga,
gróðurinn lifnar og sauðburður hefst.
Vorið er komið og gæsirnar gagga,
gróðurinn lifnar og sauðburður hefst.
Sinugul stráin í vindsveipum vagga,
vefjast um steina með snjóhettu efst.
Kuldalegan lít ég fugl,
leita sér að fæðu
Kuldalegan lít ég fugl
leita sér að fæðu.
Máske var það uglu ugl,
ugla að halda ræðu.
------------------------------
Lóan er mikið fagur fugl
flottur hennar söngur.
Lóan er mikið fagur fugl
flottur hennar söngur.
Måske finnst þar uglu ugl
ugla fer í göngur.
---
Sumir yrkja eintómt rugl
alla sína daga.
Sumir yrkja eintómt rugl
alla sína daga.
Í morgun sá ég fagran fugl,
flögra út í haga.
-----------------------------------
Bráðum gamla Hekla gýs
gjalli og ösku.
Bráðum Hekla gamla gýs
gjalli og ösku.
Í gær ég fann á prýðisprís
Pepsíflösku.
---
Fari allt til andskotans,
eitt er gott að muna:
Fari allt til andskotans,
eitt er gott að muna:
Að ég býð þér upp í dans
og um dansgólf bruna.
Úr biflíunni blaðsíður skal rífa
svo bandið hjóna prestar geti víkkað
Úr biflíunni blaðsíður skal rífa
svo bandið hjóna prestar geti víkkað.
Strax við ættum í þessu að drífa
svo öfuguggaháttinn getum prýkkað.
Klerkastéttin klofin er
í kynlífsmálum okkar.
Klerkastéttin klofin er
í kynlífs málum okkar.
Nú væri gott að hafa her
hér sem presta lokkar.
---------------------------------
Upp í kalda klettagjá
krummi fór og verrpir.
Upp í kalda klettagjá
krummi fór og verpir
eggjum laupinn í og sjá!
- ungar koma á eftir.
Nú er kominn maí. Í mér
það merki nokkuð gjörla.
Nú er kominn maí. Í mér
það merki nokkuð gjörla.
Hamlar geislum húfuder,
á hita fer að örla.
Fari menn á fyllerí
flesta sína daga
Fari menn á fyllirí
flesta sína daga
Mörgu sinnum fá þeir frí
flat- þá stundum maga.
Langi þig á Litla-Hraun
löng mun verða biðin.
Langi þig á Litla Hraun
löng mun verða biðin
Illra manna mesta raun (Ragna dómsmála)
mjög nú virðist iðin.
Þessi vísna vefur hér
vekur hjá mér kæti
Þessi vísna vefur hér
vekur hjá mér kæti
leggja má inn ljóðager
og líka yrkja um blæti.
Litháenska lagið er
líklegt mjög til sigurs.
Litháenska lagið er
líklegt mjög til sigurs
Serbía þó sigur mer
með söngvum bónda digurs.
Í Vissjonið nú vantar rokk
og vænan skammt af klámi