Hagyrðingar hefjum raust
hressir syngjum braginn,
og á þingi' er orðið laust,
inn má hringja daginn.
Þegar röskir einni enn
eftir flösku kallið
Þegar röskir einni enn
eftir flösku kallið
beint úr tösku birtist senn
brunnið öskufjallið.
Reiðin magnast, ríkur brátt,
því rummungs- hagnast -bankar.
Reiðin magnast, ríkur brátt,
því rummungs hagnast bankar.
Þangað dragnast óður átt
eigi gagnast þankar.
Ef þú borar upp í nef
eta horið skaltu.
Ef þú borar upp í nef
eta horið skaltu.
Er að vorar eigi kvef
upp í skornös þá ég hef.
Bestur flokkur býður fram,
býsna rokkar hann nú feitt.
Bestur flokkur býður fram
býsna rokkar hann nú feitt
Lát hann brokka. Beitum skamm-
byssum okkar fólk mitt reitt
Höndin mjúk sem fiskiflak
fór að strjúka þína.
Höndin mjúk sem fiskiflak
fór að strjúka þína.
Allt það sjúka andartak
enn er kjúkum pína.
Enn í hring hér yrkja skal
og svo syngja kvæðið
Enn í hring hér yrkja skal
og svo syngja kvæðið,
einnig klingja ætti graal
og umkringja svæðið.
Ef í skóginn áttu leið
einn með nógar vistir
Ef í skóginn áttu leið
einn með nógar vistir
fjarri rógi skelltu á skeið
skemmtin hógvær gistir.
Tjald skal reist á góðri grund
glöggt það veistu eflaust
Tjald skal reist á góðri grund
glöggt það veistu eflaust.
Þar tendra neistann títt með sprund
talsvert geyst og sef laust.
Margt var ort og mikið sagt,
mest þó gort og lygi.
Margt var ort og mikið sagt,
mest þó gort og lygi,
ekki horft á orðsins magt,
aðeins sort af þýi.
-listin tón- er -leg ég ær-
-lensk á fóninn ís- oft set.
-listin tón- er -leg ég ær-
-lensk á fóninn ís- oft set.
Sigurjón ég sótti í gær,
sem í tjónum átti met.
Fyrripartinn fínan tók
flekun vart sést meiri.
Fyrripartinn fínan tók
flekun vart sést meiri.
Enginn kvartar ef í bók
einni skartar Geiri.
Skáldamálin skulu hér
skreyta hálar leiðir
Skáldamálin skulu hér
skreyta hálar leiðir.
Víst nú skál að vörum fer
svo vísur sál út breiðir.
Dreg ég enga dul á það
að dökkir strengir hrjúfir
Dreg ég enga dul á það
að dökkir strengir hrjúfir
lífsins tengja stað við stað
styrk svo lengi ei rjúfir.
Hringhent gaman hripa á skjá.
hér má saman binda
Hringhent gaman hripa á skjá.
hér má saman binda
kviðling, taman tungu á;
tregum ama hrinda.
Nýjar flugur fara á loft
Úr fylgsnum hugar djúpum
Nýjar flugur fara á loft
Úr fylgsnum hugar djúpum.
Reynist dugur í þeim oft
inni í smugum gljúpum.
Hugmynd enga hef ég nú
sem hjartastrengi snerta.
Hugmynd enga hef ég nú
sem hjartastrengi snerta.
Vísur lengi vekja trú,
víkur gengið skerta
Löngum kætir vísan væn
víst hún bætir sinni
Löngum kætir vísan væn
víst hún bætir sinni.
Ef ey þú mætir mína bæn
mjög þú sætir inni.
Ef þú gefur öðrum mat
ögn þú hefur bætt þig.