Vorsins glætu vil ég sjá
vil ei stólsins kvæði
vitlaus er sú vísa að sjá
og vondust hennar gæði.
Gæði fæðast fljótt í kvæði.
Frjótt fer ótt af borðum
Glæðumst, læðum gnótt í næði
gjóttu, skjóttu orðum.
Orðum tel ég aukið það
sem enginn skyldi segja.
Til þess er nú tími að
tranti halda. Þegja.
Þagmælskunnar háa horn
heimskum þykir skrítið.
Gáfumannsins mælskukorn
má sín ósköp lítið.
Lítið hef ég litið inn
lútur sjaldan freistar
Skraddar bara skrumarinn
skáldaljómi neistar
Neistar fjallsins reiðinn römm
ríkur gjóskan víða.
kölska er og skrattans skömm
sklaflar upp til hlíða.
Hlíðum upp við heilsa þér
heillavinur - kappi.
Rafmæliskveðja kær frá mér
kasta ég til þín - Lappi.
Lappi er talinn kappi klár
kostulegur rabbi.
Í augum báðum tyndra tár,
Af tilbeiðslu kæri Skabbi,.
Skabbi hefur skondinn vana
sker hann sér í nefið.
Einnig veldur oft hans bana
ákavítið gefið.
Mellusynir mjjög oft yrkja
mergjuð kvæði
Efalaust þeir æskja styrkja
út á gæði.
Gæða drengur hann Dóri minn
duglegur og hraustur,
söknuði miklum ég fyrir finn
fari sveinninn austur.
Austur fór í Fjarðarbyggð
fann þar enga sælu.
Útsýnið er algjör hryggð
og allir lykt' af ælu.
Æ luv jú var eitt sinn sungið
alveg há-stöfum
uns lagið var á limmi sprungið
og lenti í hás-töfum.
,
Tafir engar hún Tóta þolir
tudda þarf að sækja strags.
Af lærum kusu skítinn skolir
Skúli fjósi, og ekkert bags.
Bags are packed, my bus has gone,
Borgarnes still waiting.
There I could conceive a son
(or could at least be mating).
Afsakið þetta en fann ekki í fljótu bragði annan hlekk í keðjuna...
Lífið hefur læðst að þér
lifnað gamall brími.
Eitthvað þarf að annast hér
ef það verður tími
Vorið komið. Var það farið?
Vitlaus ertu góði minn.
Væntingar og vonir sparið
því varlega það læðist inn.