Nei, ekki Hákon Aðalsteinsson. Get ekki tilfært vísur eftir hann, því þær eru svo alkunnar, að fæstir þyrftu að gúgla þær og
vissu sennilega samstundis hver hefði ort. Hann fæddist á 19. öld, en dó á þeirri 20ustu.
Nei, ekki Páll Ólafsson. Hann fæddist 15 desember 1883. Hann dó 15 mars 1916.
Jóhann Sigurjónsson?
Nei, ekki Jóhann Sigurjónsson. Oft var "eldri" skeytt við nafn höfundarins til aðgreiningar lfrá yngra hálfbróður hans og al- nafna. Sá var að mig minnir fæddur skömmu eftir að hinn dó. Hann var einnig þjóðþekktur maður.
Þetta er þá Kristján frá Djúpalæk. Eða nei annars Jónas Tómasson, þarna var "gúgglið" að stríða mér.
Nei, ekki Kristján frá Djúpalæk og ekki Jónas Tómasson. Erfitt að gúgla hann eftir gefnum upplýsingum. Ekki minnist ég þess að
hann hafi átt kvæði í skólaljóðunum.
Skil ég það rétt að umspurður hafi eignast hálfbróður eftir að hann lést?
Jónas Guðlaugsson?
Hvar er nú drullusokkurinn?
Mér skilst að drullusokkur sé tepptur. Það stendur í öllum bókum að Andrés Björsson eldri (hálfbróðir Andrésar Björssonar
sem var útvarpsstjóri fyrr á árum) sé höfundur "Haturs". Svo..............
Þessu trúi ég ekki. Ég þori að veðja að ég get tekið af handahófi bók úr heilu bókasafni og þar stendur ekki stafur um að Andrés Björsson sé höfundur að einu einasta kvæði.
Kjáni. Þetta stendur ekki í öllum bókum, en í fáeinum er það sjálfsagt.