Blöndungi þakka ég mikil færði hans og tek ofan. Bugta mig líka og beygi fyrir Kargi í djúpi auðmýkt. Glottir eins og fífl
Hvaða landsfræga skaðræðiskona var samkvæmt áreiðanlegum heimildum aflífuð og stoppuð upp á síðari hluta tuttugustu aldar og er, samkvæmt sömu áreiðanlegu heimildum, gestum og gangandi til sýnis á byggðasafni nokkru suðvestanlands?
Bu: Ekki var það Herdísarvíkur-Surtla. Hún var víst rolla en ég spyr um konu. Sjálfur er ég Megas.
Síðasta aftakan á Íslandi var 1830, þannig þetta hlýtur að vera lagatexti eða trixspurning.
Bu, taktu vel eftir frasanum samkvæmt áreiðanlegum hemiildum. Hér er ég að tala um sjálfan Sannleikann en hér á bæ leyfist ekki að draga hann í efa. Og nú held ég að ég sé beinlínis búinn að gefa upp svarið Ljómar upp.
Er þetta vísun í einhverja af skáldsögum Guðbergs Bergssonar?
Blöndungur: nei, hér er ekki vísað í skáldsögu heldur í sjálfan Sannleikann. Undrast að enginn skuli vera búinn að fatta þetta ennþá, bjóst við að vera laus á 5 mínútum frá svo léttri spurningu, já og: dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég reyndi að slá skaðræðiskonu upp í leitarvélinni minni (sem ég geri annars aldrei, ég meina að leita að svörum þannig) og þær voru svo ofboðslega margar og allar á lífi.
Var þessi kona til í alvörunni? Eða bara í raunheimum?
Söguna af þessari konu má vissulega finna á Gúglinu. Ég reyndi þó að nota ekki orð sem myndu vísa gúglurum beint á slóðina. Fannst þetta eiginlega of auðvelt samt.
Takið eftir að ég sagði samkvæmt áreiðanlegum heimildum. Þar er lykillinn. Ég veit að þið munuð ekki efast þegar svarið er komið fram. Þið eigið reyndar öll að þekkja þessa sögu og það utan að. Ég bara trúi því ekki að drottningin af Gestapó sé ekki með þetta. Klórar sér í höfðinu
Ætlastu til að ég skoði vef sannleikans alveg aftur að síðari hluta tuttugustu aldar?
Klórar sér í höfðinu Var þessi kona af tegundinni homo sapiens?
Það er þrennt til.
1. Sannleikurinn með Pétri Jóhanni.
2. Sannleikurinn.com
3. baggalutur.is
Var ekki eitthvað verið að tala um Valgerði Sverrisdóttur?
Er það Miklabæjar-Solveig?
Bu: Nr. 1 og 2 eru fals, ekki sannleikur. Að mönnum skuli detta í huga að nefna slíkt. Nr. 3 er vissulega sannleikur en það er samt ekki heimildin sem ég vitna í. Hvernig er þetta, á ekkert ykkar biblíu Gestapóans? Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Fegesji: Neibb.
Hint: Vonpið sem notað var til að drepa hana var fleygur úr kóbalti.
Það er þrennt til.
1. Sannleikurinn með Pétri Jóhanni.
2. Sannleikurinn.com
3. baggalutur.is
Var ekki eitthvað verið að tala um Valgerði Sverrisdóttur?
Hér gleymir Bu Sannleikanum um Ísland.
Mikið rétt, Megas. Ég hélt að ég myndi aldrei losna við að vaka yfir þessari bannsettu spurningu. Jæja, Megas, rétturinn er þinn.