Nei.
Hefurðu fengið símtal um nótt frá ofurdjammandi félögum.
Já, og það frá svæði hálft að næsta fjórðungi.
Hafið þér orðið vitni að skammbyssuskoti?
Já það minnir oss.
Hefur þú stungið gaffal í lærið á einhverjum?
Nei, bara heykvísl.
Hefurðu tekið þátt í ljómandi óspennandi atkvæðatalningu?
Nei... fyrsta sinn sem ég kaus, kaus ég Ástþór... held það svari þessari spurningu alveg ágætlega.
Hefur þú kosið, talið þig vera að kjósa rétt og orðið svo fyrir svakalegum vonbrigðum með það val þitt?
Nei. Þetta er allt gott og velmeinandi fólk.
Hefur þú áhuga á Formúlu 1 keppninni.
Nei, ekki nokkurn.
Hefur þú eignast þríhjól?
Nei.
Hefur þú eignast mótorhjól?
Nei... ég ætla að drepa mig á kvalaminnri hátt.
Hefur þú keyrt út í skurð?
Nei, sem betur fer ekki.
Hefur þú fengið stuð af rafmagnsgirðingu ?
Já.
Hefur þú slasað þig á skíðum?
Nei, enda hætti ég skíðaiðkun fyrir ca. 18 árum, þegar ég áttaði mig á því að ég var lélegur á skíðum.
Hefur þér verið ekið í neyðarbifreið, á leið í fangageymslur eða á spítala ?
Nei, fæddist með kanínulöpp í kjaftinum.
Hefur þú séð þennan mann?
Hvaða mann?
Hefur þú losnað við kanínulöppina úr kjaftinum?
Nei, seinasta aðgerðin er dagsett 6. mars
Hefur þér verið vikið úr sæti?
Nei.
Hefur þú tekið annars manns sæti og sigrað?