— GESTAPÓ —
Milljónasta innleggið!
» Gestapó   » Vjer ánetjaðir
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grágrímur 21/2/10 12:30

Þann 18/12/09 klukkan 01:43 gerðist nokkuð merkur atburður sem sennilega fór framhjá öllum. En þá var sent inn innlegg númer EIN MILLJÓN.

Það má sjá hér og var það enginn annar en Valþjófur Vídalín sem sendi það inn.

Er það bara ég sem hef tekið eftir þessu eða er þetta ekkert svo merkilegt?

Einfættur Gestapói númer 2. • Atvinnuátfíkill
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grýta 21/2/10 14:05

Alveg stórmerkilegt og athyglisgáfa þín er ekki síður stórmerkileg. ‹Ljómar upp›

- Aðstoðarskólastjóri Barnaskóla Baggalútíu - Samfélagsfræðikennari við sama skóla - Kaupfjelagsstýra KauBa -
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kargur 21/2/10 17:03

Afar athyglisvert. Nú hefir Grágrímur skipað sér í fremstu röð fræðimanna nútímans. ‹Býst við doðranti um fyrstu milljón innlegg Gestapósins fyrir næstu jól›

Það held ég nú!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nermal 21/2/10 17:12

Þetta er nú bara stórmerkilegt. Er þá ekki tilvalið fyrir fræðimenn að reikna út meðalfjölda innleggja á dag og meðalfjölda innleggja á hvern virkann Bagglýting?

. Eigandi Bíkinieyja. Galdramaður svefnherbergisins.Rugludallur frá náttúrunar hendi. Páfi. Einkastrippari Næturdrottningarinar
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Blöndungur 21/2/10 21:14

Almennt held ég að talan 1.000.000 sé í sjálfu sér ekki merkileg. Þó að vísu hún sé lægsta talan sem hægt er að skrifa með 7 tölustöfum í arabíska tugakerfinu, og eigi sér sérstakt nafn; þá er hún talsvert ómerkilegri en t.d. 1729, sem er lægsta talan sem hægt er að skrifa sem summu af tveimur tölum í þriðja veldi á tvo mismunandi vegu.
Mér er ekki kunnugt um hversvegna milljónasta innleggið fór alveg framhjá Gestapóum, en það er hinsvegar verk, en ekki vandamál, að búa fljótlega til næsta merkisdag tengdan einhverjum merkilegum tölum.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nermal 21/2/10 21:19

Er þá komið innlegg númer 1.111.111 ?

. Eigandi Bíkinieyja. Galdramaður svefnherbergisins.Rugludallur frá náttúrunar hendi. Páfi. Einkastrippari Næturdrottningarinar
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 21/2/10 21:26

1048576 er merkilegt tala. Hún er mega.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Blöndungur 21/2/10 21:28

Enn virðist nokkuð langt í það. (Þ.e. í 1.111.111. innleggið. - Bl.) Síðan í desember virðast hafa verið skrifuð rúmlega 8500 innlegg.
Og, sem viðbót, þá ætlaði ég að athuga hvort hægt væri að grafa upp fyrsta innleggið. (Semsagt að leggjast í smá paleoinnleggjalógíu.) Það virðist hinsvegar ekki vera til. ‹Brestur í óstöðvandi grát›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Blöndungur 21/2/10 21:34

Annars, hlewagastiR, hvað eru megatölur?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grágrímur 22/2/10 01:09

Blöndungur mælti:

Annars, hlewagastiR, hvað eru megatölur?

Held að Hlebbi snillingur sé að tala um Þetta.

Einfættur Gestapói númer 2. • Atvinnuátfíkill
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 22/2/10 12:00

égm tók þmátt mm´mmi þv´mimmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm

KauBfélagsstjórinn.
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 22/2/10 13:05

Hvernig í áranum sérðu fjölda innleggja ? Ertu með stolin leyniskjöl ?
Ertu óvinur ríkisins ? ‹ Potar í Grágrím með skítugri sleif›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grágrímur 22/2/10 14:16

Hvæsi mælti:

Hvernig í áranum sérðu fjölda innleggja ? Ertu með stolin leyniskjöl ?
Ertu óvinur ríkisins ? ‹ Potar í Grágrím með skítugri sleif›

Sko ef þú kíkir á hlekkinn í fyrsta innleggi þráðarins þá lýtur hann svona út
http://www.baggalutur.is/gestapo/viewtopic.php?p=1000000&highlight=#1000000
Talan á eftir "p="-inu er númer innleggsins í Gestapógagnameitrixxinu.

Merkilegt nokk ef maður svarar þræði getur maður séð númerið á innlegginu sem maður er að fara að senda inn, í "addresslínunni" á vafranum.

Fær nördasjokk.›

Einfættur Gestapói númer 2. • Atvinnuátfíkill
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Blöndungur 22/2/10 20:49

Jahérna, [2 (í tuttugugasta veldi)]-sta innleggið er svo sannarlega merkilegur þröskuldur. Haf þökk HlégestuR, fyrir að halda því á lofti.

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 22/2/10 22:36

Grágrímur mælti:

Hvæsi mælti:

Hvernig í áranum sérðu fjölda innleggja ? Ertu með stolin leyniskjöl ?
Ertu óvinur ríkisins ? ‹ Potar í Grágrím með skítugri sleif›

Sko ef þú kíkir á hlekkinn í fyrsta innleggi þráðarins þá lýtur hann svona út
http://www.baggalutur.is/gestapo/viewtopic.php?p=1000000&highlight=#1000000
Talan á eftir "p="-inu er númer innleggsins í Gestapógagnameitrixxinu.

Merkilegt nokk ef maður svarar þræði getur maður séð númerið á innlegginu sem maður er að fara að senda inn, í "addresslínunni" á vafranum.

Fær nördasjokk.›

‹Klórar sér í höfðinu›

Hefuru ekkert að gera ?‹Glottir eins og fífl›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grágrímur 22/2/10 22:43

Ekki rassgat eftir að ég vann "Síðastur að svara" þráðinn fyrir löngu síðan. ‹Glottir eins og fífl›

Einfættur Gestapói númer 2. • Atvinnuátfíkill
» Gestapó   » Vjer ánetjaðir   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: