Kynna vil ég kvæðaþráð
- kostar ekki að reyna -
reyndar upp á ykkar náð
ekki er því að leyna.
Gilda skal á þræði þá
þessi reglan eina:
sérhver vísa endi á
ekki er því að leyna.
Hörð er reglan, hér um bil
hliðrun vill ei neina.
Þó má segja, ef þörf ber til:
því er ekki að leyna.
Má ég bara benda á eitt:
Byrji það að reyna,
verður fólk á þessu þreytt,
því er ekki' að leyna.
Atkvæðunum ef ég kem
aðeins fimm hér í,
línan út- má -leggjast sem
leynum ekki því.
Eða hvað?
Þó aldrei maður ætti að hvika
og iðka reglu hreina
má þó vísast vissu hnika.
Vart er því að leyna.
Afar margan hortitt hér
held ég megi greina.
Þeirri staðreynd algjör er
ósiður að leyna.
Sérstakur er saksóknari
sem að brot má greina,
engum kemur inn í snari,
ekki er því að leyna.
Undir niðri eg góla
emja, kvarta, veina.
Því tekjur geymi'á Tortóla
tæpast skal því leyna.
óhug fyllist ef að hér
öðrum þarf að skeina
einhvernveginn ólga fer
Ekki er því að leyna
Hún er fjörug, hún er góð,
hún veit hvað ég meina.
Erfða- tæmir -efnissjóð,
ekki er því að leyna.