— GESTAPÓ —
        1, 2, 3 ... 517, 518, 519, 520, 521, 522  
InnleggDannibé! - Jarmi - 13/12/05 17:47

Slakaðu á því hvæsi, passaðu þrýstinginn. Ekki viljum við að þú sprengir ósæð.

InnleggDannibé! - Jarmi - 13/12/05 17:39

Góður hvæsi. Á ég að strauja skyrturnar þínar í leiðinni?

InnleggAkkúrat! eða víst! - Jarmi - 13/12/05 17:28

Akkúrat! Það á að lemja í höfuð ef maður ætlar að lemja einhvern lúsablesann.

Grænmeti er ekki matur!

InnleggNýbreytni í íþróttum - Jarmi - 13/12/05 17:26

Ég veit! Keppum í að renna ofvöxnum damm-kubbum úr granít eftir ís og sópum svellið eins og spassar á sterkum lyfjum á meðan. Hey nei... það er víst til nú þegar.

InnleggDannibé! - Jarmi - 13/12/05 17:23

Vertu þá bara ekkert að hrópa. Það er enginn að biðja þig um það.

Dannibé kemur samt líklega bráðum inn á Gestapó, hann getur þá bara sagt þér sjálfur hversu góður hann er að tuska menn til.

Béé ...

Innleggmiðnæturfrost - Jarmi - 13/12/05 17:21

Jæja, hann gæti bara tekið sér pásu til að semja flotta vísu. Hentar honum ábyggilega vel bara. Enda flott skáld.

InnleggDannibé! - Jarmi - 13/12/05 17:20

Hrópaðu bara það sem þú vilt. Já eða vilt ekki.

Húrra fyrir Dannabé!

InnleggDannibé! - Jarmi - 13/12/05 17:17

Dannibé er algjört rúgbrauð! Sterkur sem naut. Hann hefur mig næstum alltaf undir. Hann væri flottur í útlendingahersveitina frönsku.

Dannibé!!!

Innleggmiðnæturfrost - Jarmi - 13/12/05 17:01

Ég held að sterkasti leikurinn væri að láta frostið eiga sér stað um klukkan 6 að morgni. Þá myndi það ekki trufla marga held ég.

Það mætti koma meira í tísku að spila jólalög án texta. Allavegana finnst mér það betra þannig.

InnleggAkkúrat! eða víst! - Jarmi - 13/12/05 16:34

Víst!

Ég lem ekki konur!

Ég þarf kannski ný innlegg í skóna. Maður er búinn að bæta svo miklu á sig undanfarið. Mataræðið er allt!

InnleggFullyrðingamót - Jarmi - 13/12/05 16:25

Gluggagægir læðist hér.
Giljagaur vill éta smjer.

InnleggFullyrðingamót - Jarmi - 13/12/05 16:09

Kartöflu gaf Stekkjastaur.
Stúfur er að biðja' um aur.
Fjandi kúl er fjósagaur.

InnleggSamtökin EMBLA - Jarmi - 13/12/05 12:12

Hver eru félagsgjöldin hérna? Dugar að vera lunkinn að tálga spítur?

Ég er kannski ekki fallegasti maður í heimi, en ég er ekki alveg rússaljótur!

Hvað segiru annars gott töffarinn þinn?

InnleggLeitarlús - Jarmi - 13/12/05 12:06

Enter er fullur, eða að skeina krakkanum... eða hvortveggja.

Klukkan er rétt að verða tólf.

Svo finnst mér orðið "dólgslæti" ekki vera nóg notað í almennu tali.

        1, 2, 3 ... 517, 518, 519, 520, 521, 522  
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: