Ég vil ekki græta ykkur, svo ég læt það vera að segja ykkur að hér er sumarveður. 21° í dag og nú fallið niður í 17° klukkan 19 að staðartíma.
Þetta er pottþétt Hemmi Gunn... þetta er alltaf Hemmi Gunn.
... að þegar manni leiðist í einsemd þá er bjórinn góður plástur á sálina. Er ekki einhver að fara að djamma í kvöld?
Garbo er óæt og seig. Já og illa marineruð.
Eins og svo oft áður var Nermal að teikna óla-prik á mallann á sér. Með olíutúss.
Nei. Enda vinna engin skæri á blágullnu hári mínu.
Ps. nennir einhver að klippa mig?
Ég er að hlusta á merkilega blöndu 100 smáfugla að syngja og Metallica að rokka. Það er gott að búa í stóru einbýlishúsi með stóran garð.
Það besta sem kom fyrir mig í dag var dagurinn í dag. Já og bjórinn, ekki gleyma fjandskotans bjórnum.
Læsa sem flesta inni. Maður tryggir ekki eftirá!
núrgis er að ganga hjólbeinótt um íbúðina, klædd sem Lukku Láki, skjótandi flugfiskana sína með agúrkum og banönum.