Er skautbúningur skotheld flík?
Skelfur á beinum varðhundstík?
Er ég lík ef öfugt strík?
Er eignargleði þín mjög rík?
Margur er úr góðu gerður
Gerði hugnast morgunverður
Ein hét hljómsveit njarðvíksk Nerður.
Gerður er að gefa smokka.
Nú kominn er að kveldi
kleinuhringja dagur.
Ég hátíðlegan héldi
hann, ef væri magur.
"Allt mitt líf var eilíf leit
eftir" Jesú Kristi,
"en ég er eins og alþjóð veit
aðeins" hedonisti.
Samkeppni er synd.
Ekkert rím ég á í dag
eða flím á lausu.
Samt í vímu syngi' eg lag
sæktirðu lím í ausu.
Glaður syng eg sólarljóð.
Sit í lyngi á hóli.
Bankinn eflaust elskar þig.
Hann alla jafna geldir mig.
Köld er bankans kærleikshönd.
Heyrist Svala syngja um kvalir
sínar. Hala sveiflar æst.
Í kjólnum gala fram á fjalir
fer hún. Talinn einkar glæst.
Tjaldborg reisti trúað fólk og tilbað Guð.
Þar var ekkert nagg og nuð.
Bráðum kemur blessað vorið
og bætir skapið þitt.
Ekki get ég af mér borið.
Ætla' að hella' á spritt
Ölvaður varstu alltaf til
eintómra vandræða.
Frúar prestins farsælt starf, sem fékk oft hrós.
í sálum tendrar trúarljós.
Heldurðu að fólkið fíli grön?
Leynist bak við brosið hýra
botnlaust napurt hatur.
Fjötra vill hann frelsið dýra.
(Fjaska er ég latur).
Bankinn eflaust elskar þig
Er eitthvað gott við gagnsæi?
Gamla brussan Bína
böðlast áframm enn.
Hún forðast flatsæng þína
og fær sér aðra menn.
Ég fékk hina vondu veiki
og vitið missi senn
Tvö þarf víst í tangóinn að talið er,
því húlla betur hæfir mér.