— GESTAPÓ —
        1, 2, 3, 4 ... 76, 77, 78  
GESTUR

Í bríaríi er bruggað vín.
Brúsi af gambra fyllist.
Áhrifin þau eru fín
og ekki til að skammast sín.

GESTUR

Þilja verður þetta hús.
Þú ert kannski til þess fús.
Láta í sökkul grjót og grús.
og girða fyrir rottu og mús.

GESTUR

Hausinn sá ég herðum á.
Hann er þá ei dauður.
Var að slá með linum ljá
lúinn frá og trauður.

GESTUR

Dagar eru dimmir. Nú ég daufur er.
Ég víkinglega og vel mig ber.

GESTUR
InnleggKveðist Á - Bullustrokkur - 11/8/22 19:09

Lakið bætta leggst ég á.
Læt ég undir höfuð svæfil.
Mér ullarteppi ætla fá.
Ekki kalla mig þá ræfil.

GESTUR

Fer ég jafnan fram úr mér
ef fæ að safna myndum.
Ýmsu hafna verðum vér
ef vel þú dafna ætlar hér.

Næturfrost í norðanátt
nú mun kosti þrengja.

GESTUR

Sveitin hún er sælustaður sveini og meyju.
Bezt er dvöl á eyðieyju.

GESTUR

Satt ég verð að segja þér,
þó sjaldan það ég iðki.
Gott mér þykir gæðasmér
ef gellur saltar et eg hér..

GESTUR

Fikta ég við drykkju og dóp
dálítið með vinahóp.
Illir gera að mér hróp.
Ýmsan vanda það mér skóp.

GESTUR

Miði hraut nú mér í skaut.
Mikið tauta eg núna maður.
Prentbréf hlaut á Pétur Gaut.
Prompinn þaut eg hingað glaður.

GESTUR

Hef ég ekki fiman gót
fer ég varla á gólfið.
Konan sem tók mér á mót.
mælti: Far í hólfið.

Ég get um það talað trútt.
Tuða ég því mikið.

GESTUR

Orðafoss kom út úr munni. Illur var.
Æru mína út hann bar.

GESTUR
InnleggKveðist Á - Bullustrokkur - 10/8/22 23:18

Krukkur fullar á ég enn
af ýmis konar keti.
Fer ég þeim að fleygja senn
svo fyllt ég aðrar geti.

GESTUR

Bleyti kringlu í kaffi mínu köldu og römu
Byrja á væli vorkunsömu.

GESTUR

Virkur dagur vinnu hefst
verkin þurfa framgang.
Samstarfs hún við kjána krefst
Kvöl að hafa samgang.

Velkomnir þeir eru allir
sem yrkja vísur hér.

GESTUR

Toll af umferð taka verðum til þess að
meira verði malbikað.

GESTUR
InnleggKveðist Á - Bullustrokkur - 9/8/22 14:31

Sviðið hef ég haus af kind
Hann í pottinn lét ég
Hann tók á sig mína mynd.
Matgráðugur hann nú ét ég.

GESTUR
InnleggKveðist Á - Bullustrokkur - 8/8/22 23:33

Jónsgrösin mín jeg mjög reyki.
Jurtir þær ég rækta út í mó.
Þessu fylgir framandleiki
og friður, sæla, unaður og ró.

        1, 2, 3, 4 ... 76, 77, 78  
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: