Puðað hef ég ævi alla.
Orkan þraut.
Klósett þreif og karmars dalla.
Kross ég hlaut.
Mílur eru mislangar.
Mig í ys og þys langar.
Drauginn nú í dys langar.
Mílur eru mislangar.
Birgir! þú sveikst frá Sigmundi.
Synd þín er mikil og stór.
Þú líkist helzt munnkristnum mannhundi
sem mangar með þýfi og hór.
Þú og ég það erum við
Gúnda minn, þann góða mann,
get ég ekki valið,
því Simma vin er alþjóð ann
mitt umboð hef ég falið.
Sterkt er Bláabandið.
Blandið eflir landið.
Styrkir hér þið standið.
Sterkt er Bláabandið.
Vetur kemur vex þá þor
vísnagerðamenna.
Og þeir sem latir voru í vor
vísur yrkja nenna.
Þú steigst fram á sjónarsvið
og sagðist pissa í kopp.
Sigmundi þú lagðir lið
Þú steigst fram á sjónarsvið
Veiran upp nú vakin er.
Vælubíll í eyrun sker.
Bergdís oft úr buxum fer.
Bullustrokkur fer á Her.
Fermat meira fíflið var.
Fjórir teljast réttast svar.
Þá tvisvar sinnum tvennt við bar.
Hefurðu etið soðin svið?
Hland komst fyrir hjarta mitt,
og harmur þá fram brauzt,
er Grágrímur fjarlægði framlag sitt
fyrirvaralaust.
Formanneskjur fóru í slag.
Nýjar veirur vakna.
Vetri fáir sakna.
Upp mun ríman rakna.
Reglur munu slakna.
Nýjar veirur vakna.